Fara í efni

Malbikun á suðurlandsvegi 6. júlí

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:

Mánudaginn 6. júlí er stefnt á malbikun á Suðurlandsvegi og verður hringveginum lokað til austurs við Gaulverjabæjarveg.

Önnur akreinin verður malbikuð í einu og umferð á leið til vesturs ekur meðfram vinnusvæðinu. Hjáleið á leið austur verður um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg. Merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun 8.0.83.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 22:00 mánudaginn 6. júlí

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Ábyrgðarmaður veghaldara er Ásgeir 844-4069 og ábyrgðarmaður verktaka er Halldór 660-1916.


Síðast breytt: 3. júlí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?