Malbiksviðgerðir á Suðurlandsvegi frá Sandskeiði að Hveragerði 27. - 28. júlí.
27.07
Frétt
Mánudaginn 27. Júlí og þriðjudaginn 28. Júlí er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi frá Sandskeiði að Hveragerði. Aðeins verður unnið að viðgerðum þar sem eru tvær akreinar í sömu aksturstefnu og verður umferð veitt meðfram vinnusvæðinu.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 19:00 hvorn dag.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Síðast breytt: 27. júlí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?