Líður að starfslokum
Líður að starfslokum
Að vaxa með bæ í blóma
Ég fékk símtal fyrir rúmum tveimur árum og mér boðið verkefni sem fagráðin bæjarstjóri Hveragerðisbæjar - seinni hálfleik kjörtímabilsins.
Það hafði verið hressileg bræla í bæjarpólitíkinni um skeið og rekstur bæjarins mikil áskorun. Ég var hins vegar sjálfur með góða magatilfinningu fyrir verkefninu. Átti ég afar góðar æskuminningar frá Eden, sumarblómaferðum yfir heiðina og klessubílunum alræmdu. Elskaði þá! En það sem skipti mestu máli var að Milla var sannfærð um að ég myndi gera bænum gagn. Ég væri rétti maðurinn í þessa vegferð.
Líkt og ilm í blíðum blæ
blessun hans ég finn.
Í Hveragerði, blómabæ
er bústaðurinn minn
Þetta fallega ljóð eftir Rannveigu Hjálmarsdóttur situr í einum glugganum á skrifstofu bæjarstjóra og talaði strax til mín þegar ég kom mér fyrir.
Verkefnið var bratt. Ná tökum á rekstrinum, koma umfangsmestu innviðauppbyggingu í sögu bæjarins af stað, klára afar brýna skipulags- og stjórnkerfisbreytingu, sefa bæinn og virkja betur bæjarstjórn sem heild. Ég sá strax þrjá augljósa kosti sem myndu gera þetta verkefni vel mögulegt: Frábær bær, vel mönnuð bæjarstjórn og úrvals starfsfólk.
Brátt lýk ég störfum, þá er gott að fara yfir tveggja ára uppskeru.
- Uppsafnaður rekstrarafgangur síðustu tveggja ár er sá mesti í sögu bæjarins.
- Þriðji áfangi grunnskólans var tekin í gagnið á haustmánuðum 2025.
- Ný viðbygging við Óskaland var tekin í gagnið sumarið 2025 og biðlistar hurfu.
- Nýr gervigrasvöllur verður tekin í gagnið fyrir mánaðarmót.
- Framkvæmdir við íþróttahús með sérstakri fimleikaaðstöðu ganga vel og samkvæmt tímaáætlun verður húsið fokhelt í desember – æfinga- og keppnisfært um mitt ár 2027.
- Nýtt skipurit var kynnt með ákvörðun bæjarstjórnar í upphafi ársins eftir tæplega tveggja ára undirbúning og vinnu. Fjögur fagsvið, með sviðsstjórum sem fara með ábyrgð sviðanna, eru nú grunnur skipurits bæjarins þar sem stjórnsýslusvið er stoðsvið sem vinnur þvert á hin sviðin þrjú.
- Nýtt aðalskipulag unnið og staðfest formlega þann 15. maí s.l.
Samtal, virk hlustun og samráð er besta ráð sem ég á og kann ef markmiðið er að stuðla að einingu, uppbyggingu og friði. Þannig urðu til reglulegir opnir fundir fyrir íbúa með bæjarstjóra, Pælt í bænum, þar sem öll bæjarmál, stór og smá, voru undir.
Ég lagði upp með að eiga meira samráð og samtal við alla bæjarfulltrúa þannig að mál væru afgreidd í einingu allrar bæjarstjórnar. Funda oftar og eiga meira samráð með haghöfum þeirra innviðaverkefna sem hrundið var af stað. Viti menn, dag frá degi bar þessi aðferð meiri árangur. Eftir því sem tímanum leið fann ég meiri frið um málefni bæjarins, meiri einingu um sögulega uppbyggingu og meiri sátt um ólík pólitísk sjónarmið.
Ég sat á aftasta bekk á sameiginlegum framboðsfundi rétt fyrir kosningar. Nýi salur grunnskólans var þéttsetin og stemmningin var yfirveguð - ekki reið eða bæjarandinn rofinn. Hitt heldur var það einingin og eftirvænting yfir framtíð bæjarins sem einkenndi fundinn - andinn sem sveif yfir.
Ég held að það sé óhætt að segja að þarna hafi ég upplifað mestu gleðina og stærstu uppskeruna í starfi – einingin og friðurinn í salnum var áþreifanlegur. Málefnaleg rök um framtíð bæjarins höfðu dagskrárvaldið, öflugir og vel skipaðir flokkar kynntu sig vel. Við erum á betri stað núna.
Það er öðru fremur hlutverk bæjarstjóra að færa fólk saman - ekki í sundur. Finna eininguna í einstöku mannlífinu.
Við lok síðasta bæjarstjórnarfundar Hveragerðisbæjar föðmuðust bæjarfulltrúar og þökkuðu fyrir samstarfið og samfylgdina. Það var góð stund og mikilvæg.
Í fundarherbergi bæjarstjórnar er þetta spekiljóð eftir Gunnar Dal greipt í einn gluggann:
Kastið ekki steinum
Í kyrra tjörn
Vekið ekki öldur
óvita börn
Við erum saman á betri stað núna og framtíðin er björt.
Mig langar að þakka meirihlutanum fyrir samstarfið og samfylgdina – alla vikulega fundina, hláturinn, brýningarnar, rökræðuna og speglunina. Og það sem þyngst vegur – hugrekkið, skarpa sýn og viljann til uppbyggingar og umbóta. Þar liggur söguleg arfleið þessa meirihluta og farsæld síðustu ára.
Bæjarstjórn allri þakka ég fyrir frábær kynni og einstakt samstarf. Það var gott að finna frá fyrsta degi að ég gat ráðfært mig og speglað öll mál með minnihlutanum og fundið sameiginlega fleti á allflestum málum og lent þeim með samhljóða ákvörðun bæjarstjórnar. Ekkert hefur meiri áhrif á lífsgæði íbúa en samhent bæjarstjórn – mínar bestu þakkir til bæjarfulltrúa minnihlutans. Okkar samstarf var til mikillar fyrirmyndar og blessunar.
Minn árangur í starfi hvílir öðru fremur í þeirri staðreynd að ég hef verið fádæma lánsamur með samferðarfólk – starfsfélaga sem eru ekki bara skarpari og vísari en ég í sínum sérhæfðu störfum, heldur eru mér fordæmi, fyrirmyndir, oft mentorar, í krefjandi verkefnum daganna. Takk fyrir samfylgdina og samstarfið – umfram allt takk fyrir vinskapinn sem ég geymi áfram sem gull.
Bærinn ekki bara á betri stað en fyrir tveimur árum – ég hef sjálfur stækkað og blómgast með bænum. Þannig eiga ástrík og innihaldsrík sambönd að vera. Við eigum að vaxa saman þar sem við vegum hvort annað upp í styrk og vanmætti. Finn til krafta okkar þegar aðrir þurfa stoð – og eins eigum við að finna jafnvægið í náunganum þegar lífið hallar um of.
Sveitarfélög eru summa fólksins sem þau byggja. Af þeim sökum er Hveragerði í fremstu röð – Hvergerðingar eru nefnilega einstakt fólk, sískapandi í sál og sinni.
Takk fyrir mig, ég gleymi ykkur aldrei.