Lenging á opnunartíma sundlaugar
16.03
Frétt
Opnunartími Sundlaugarinnar Laugaskarði verður lengdur frá og með 1. apríl nk. Það var ungmennaráð bæjarins sem kallaði eftir breyttum opnunartíma yfir vetrartímann og því var farið í endurskoðun á opnunartímanum í heild sinni. Hér fyrir neðan má sjá nýja opnunartíma sundlaugarinnar.
Vetraropnun, 15. september – 14. maí verður framvegis með eftirfarandi hætti:
Mánudagar – föstudagar kl. 6.30 – 21.00
laugardagar – sunnudagar kl. 9.00 – 17.30
Sumaropnun, 15. maí – 14. september verður eftirfarandi:
Mánudaga – föstudaga kl. 6.30 – 21.30
Laugardaga – sunnudaga kl. 9.00 – 19.00
Síðast breytt: 16. mars 2026
Getum við bætt efni síðunnar?