Fara í efni

Leikskólastarfsmaður óskast á Leikskólanum Óskaland

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum deildarstjórum, leikskólakennurum og/eða leiðbeinendum með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða bæði stöðu til frambúðar og afleysingu í fæðingarorlofi með möguleika á áframhaldandi starfi. Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi:

  • Forgangur í leikskólapláss
  • Frítt fæði
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði

 

Umsóknarfrestur er til 8.mars nk.

Umsóknknum skal skilað á netfangið oskaland@hveragerdi.is ásamt ferilskrá. Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.


Síðast breytt: 18. febrúar 2026
Getum við bætt efni síðunnar?