Fara í efni

Laus störf hjá Hveragerðisbæ

Hveragerðisbær auglýsir eftirfarandi stöður:

  • Talmeinafræðingur - fullt starf

Skólaþjónusta Hveragerðisbæ leitar eftir talmeinafræðingi til starfa í leikskólum Hveragerðisbæjar. Hlutverk talmeinafræðings er að sinna snemmtækum stuðningi og sinna greiningavinnu sem talmeinafræðingur. Starfsstöðvar talmeinafræðings eru hjá leikskólum Hveragerðisbæjar sem eru tveir, leikskólinn Undraland og leikskólinn Óskaland. Sviðstjóri mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs er næsti yfirmaður talmeinafræðings og er lögð mikil áhersla á teymisvinnu og lausnamiðaða hugsun í öllum þeim verkefnum sem unnið er að innan leikskólanna.

  • Sérfræðingur skólaþjónustu - hlutastarf

Skólaþjónusta Hveragerðisbæ leitar eftir sérfræðingi til að sinna ráðgjöf í teymum sem og að koma að verkefnum er snúa að farsæld barna. Þekking og reynsla af innleiðingu farsældarlaganna og skilningur á hlutverki gagnvart þeim er mjög mikilvægur þáttur í starfi sérfræðings skólaþjónustunnar. Sviðstjóri mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs er næsti yfirmaður sérfræðings skólaþjónustu.

  • Málstjóri í samþættri þjónustu á velferðarsviði - hlutastarf

Velferðarsvið Hveragerðisbæjar óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi aðila í starf málstjóra í farsældarþjónustu. Mikilvægt er að málstjóri hafi yfirgripsmikla þekkingu á hlutverki málstjóra í samþættri þjónustu. Náið samstarfið við foreldra, börn og samstarfsfólk er stór hluti af starfi málstjóra. Við leitum einnig eftir að sá viðkomandi hafi hlutverk gagnvart áframhaldandi þróun samþættrar þjónustu hjá Hveragerðisbæ og hafi umsjón með samráðsfundum þeirra sem starfa í stofnunum bæjarins og sinna sértæku hlutverki gagnvart lögum um farsæld barna. Sviðstjóri velferðarsviðs er næsti yfirmaður málstjóra í samþættri þjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Mikilvægt að góð starfsreynsla á vettvangi velferðar-og eða hjá skólaþjónustu.
  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Gott vald á íslensku í ræði og riti.
  • Frumkvæði í starfi og skipulagshæfni
  • Þekking og reynsla af stöfum í með börnum eða í opinberri stjórnsýslu er skilyrði.
  • Áhugi á og reynsla af teymisvinnu.
  • Þekking og reynsla af skjalavörslukerfinu OneCRM
  • Færni til að túlka flóknar upplýsingar og vinna að stuðningsáætlun fyrir skjólstæðinga.
  • Framúrskarandi samskiptafærni
  • Hreint sakavottorð samkv. lögum og reglum.
  • Góð meðmæli frá fyrrum vinnuveitanda skilyrði.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 2. júní

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veita Erna H. Solveigardóttir sviðstjóri Velferðarsviðs, erna@hveragerdi.is og Elfa Birkisdóttir sviðstjóri mennta-, menningar og lýðheilsusviðs. elfa@hveragerdi.is

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.


Síðast breytt: 19. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?