Langar þig að vera dagforeldri?
			
					05.12			
			
					
							
					Frétt				
					
		Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar, en velferðarþjónusta Hveragerðisbæjar hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra og ráðgjöf við dagforeldra og foreldra. 
Fræðslu- og velferðarþjónusta Hveragerðis býður upp á ýmislegan stuðning við dagforeldra í Hveragerði og veitir Elfa Birkisdóttir, deildarstjóri fræðslusviðs nánari upplýsingar um þær leiðir sem í boði eru - elfa@hveragerdi.is
Allir sem fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þurfa að uppfylla skilyrði sbr. reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu í heimahúsum frá maí 2002.
Síðast breytt:  5. desember 2023
Getum við bætt efni síðunnar?