Fara í efni

Hafsteinn er Íþróttamaður Hamars árið 2023

Brynjar Óðinn, Hafsteinn Valdimarsson Íþróttamaður Hamars 2023, Úlfur og Ragnar. Allir fengu þeir vi…
Brynjar Óðinn, Hafsteinn Valdimarsson Íþróttamaður Hamars 2023, Úlfur og Ragnar. Allir fengu þeir viðurkenningu fyrir árangur sinn á liðnu ári.

Hafsteinn Valdimarsson var útnefndur Íþróttamaður Hamars árið 2023 á aðalfundi félagsins í gær. Hafsteinn var lykilmaður í blakliði Hamars sem varð bikar- og deildarmeistari á árinu. Hann lék einnig með landsliði Íslands sem tók þátt í smáþjóðamóti í júní en þar náði liðið þriðja sæti í mótinu. Hafsteinn hefur verið lykilleikmaður í sínum liðum og er til mikillar fyrirmyndar jafnt innan vallar sem utan.

Aðrir sem tilnefndir voru til Íþróttamanns Hamars þetta árið voru Brynjar Óðinn Atlason knattspyrnumaður, Úlfur Þórhallsson fyrir badminton og Ragnar Ágúst Nathanaelsson fyrir körfuknattleik. 

Hveragerðisbær óskar Hafsteini til hamingju með titilinn Íþróttamaður Hamars 2023. 


Síðast breytt: 12. mars 2024
Getum við bætt efni síðunnar?