Fara í efni

Íbúafundur um vorverkin

Til stendur að uppfæra reglur um girðingar, skjólveggi og smáhýsi sem hafa verið í gildi síðan árið 2020, sjá hér.  Oddur Hermannsson landslagsarkitekt mun kynna tillögu að nýjum reglum. Reglunum munu fylgja skýringarmyndir og leiðbeiningar svo að reglur um lóðamál og skjólgirðingar verði auðskildari og geri húseigendum og starfsfólki bæjarins auðveldar með að svara fyrirspurnum um lóðar- og byggingarmál. Sjá reglur og leiðbeiningar

Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt mun einnig kynna frumdrög að lóðarhönnun fyrir leiksvæði á lóð bæjarins að Heiðmörk 66. Leikvöllurinn er opinn öllum og er hugsaður fyrir fjölbreyttan hóp notenda með áherslu á eldri íbúa og ung börn.

Opinn íbúafundur verður haldinn um málefnin í salnum Þinggerði á Hótel Örk þriðjudaginn 24. febrúar 2026 kl. 17. Öll velkomin!


Síðast breytt: 16. febrúar 2026
Getum við bætt efni síðunnar?