Fara í efni

Hveragerðisbær og Hamar semja til þriggja ára

Geir Sveinsson bæjarstjóri og Þorsteinn Ragnarsson formaður Hamars undirrita hér samninginn milli Hv…
Geir Sveinsson bæjarstjóri og Þorsteinn Ragnarsson formaður Hamars undirrita hér samninginn milli Hveragerðisbæjar og Íþróttafélagsins Hamars til þriggja ára.

Nýr samstarfssamningur milli Hveragerðisbæjar og Íþróttafélagsins Hamars var undirritaður í gær á aðalfundi félagsins.

Megininntak samningsins er tvíþætt og felst annars vegar í rekstrarstyrk til Hamars næstu þrjú árin eða til ársloka 2026 og hins vegar hefur Hveragerðisbær orðið við þeirri ósk Hamars að styðja við launagreiðslur vegna ráðningar framkvæmdastjóra félagsins næstu þrjú árin.

Á gildistíma samningsins mun framkvæmdastjóri félagsins meðal annars vinna að því að Hamar nái viðurkenningunni Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, auk þess að halda utan um fjármál og rekstur félagsins.

Rekstarstyrkurinn er til stuðnings við barna- og ungmennastarf, starfsemi meistaraflokka og íþróttasvæði. Einnig er hann hugsaður sem fjárveiting í ferðasjóð og í tækja- og áhaldasjóð. Á árinu 2024 er beinn fjárstyrkur til félagsins því 24,5 m.kr. Árið 2025 verður hann 28,5 m.kr. og loks verður hann 29,5 m.kr. árið 2026. Samtals nemur því beinum fjárstyrkjum til Hamars 82,5 m.kr. á samningstímanum.

Auk hinna beinu framlaga hefur Hamar til afnota íþróttahúsið við Skólamörk eftir að íþróttakennslu grunnskólans lýkur, Sundlaugina í Laugaskarði og íþróttavelli bæjarins, Hamars- og Grýluvöll.

Hveragerðisbær greiðir einnig fyrir aðstöðu til íþróttaiðkunar á Selfossi, í Ölfusi og í Reykjavík samkvæmt samkomulagi hverju sinni, meðan aðstaðan er takmörkuð í Hveragerði.

Þá má nefna rútuferðir sem Hveragerðisbær sér iðkendum Hamars fyrir til æfinga í Þorlákshöfn, á Selfossi og í Reykjadal. Og bærinn sér líka um að allir iðkendur félagsins séu slysatryggðir við skipulagðar æfingar og keppni á vegum félagsins upp að átján ára aldri.

Hveragerðisbær leggur einnig til vinnuframlag frá Vinnuskóla bæjarins vegna íþróttanámskeiða og íþróttavalla.

Íþróttafélagið Hamar vinnur öflugt starf í íþróttum, tómstundum og forvörnum auk þess að hafa jákvæð samfélagsleg áhrif og þjappa íbúum saman. Það er Hveragerðisbæ og samfélaginu öllu mikilvægt að félagið geti rækt hlutverk sitt sem best og því leggur bærinn til fjármuni og aðstöðu eftir því sem kostur er hverju sinni.

Það verður áhugavert að fylgjast með framvindunni hjá Hamri næstu þrjú árin og það er mikið tilhlökkunarefni að sjá Íþróttafélagið Hamar á lista yfir Fyrirmyndarfélög ÍSÍ að samningstíma loknum.

Geir Sveinsson bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og Þorsteinn Ragnarsson formaður Hamars undirrituðu samninginn á aðalfundi Hamars.


Síðast breytt: 12. mars 2024
Getum við bætt efni síðunnar?