Laust starf sem forstöðumaður sundlaugarinnar Laugarskarði
Leiðtogi óskast til að leiða starfsemi í fallegustu sundlaug landsins
Hveragerðisbær auglýsir starf forstöðumanns sundlaugarinnar Laugarskarði
Forstöðumaður ber ábyrgð á starfsemi sundlaugarinnar, skipuleggur daglega starfsemi og fer með mannaforráð. Staða forstöðumanns fellur undir nýtt svið mennta, menningar og lýðheilsu hjá Hveragerðisbæ. Forstöðumaður tekur þátt í stefnumótun þeirra mála sem snerta starfsemi sundlaugarinnar innan sviðsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Daglegur rekstur og skipulag á starfsemi sundlaugar
- Ábyrgð á málefnum starfsfólks sundlaugar m.a. ráðning starfsfólks, vaktaskipulag o.fl.
- Samskipti við stjórnendur og starfsfólk annarra stofnanna sem nýta þjónustu sundlaugar.
- Ábyrgð og eftirlit á öryggismálum og gæðaeftirliti skv. gildandi reglugerðum og starfsemi sundlaugarinnar og samskipti við efirlitsaðila.
- Þátttaka í áætlunargerð í starfseminni s.s. fjárhagsáætlunargerð og annarri stefnumótunarvinnu.
- Þróun og umbætur í þjónustu og starfsemi sundlaugarinnar
- Gert er ráð fyrir að forstöðumaður sinni vöktum sem sundlaugarvörður.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa lokið viðurkenndu skyndihjálparnámskeiði og endurlífgun (CPR) og standast hæfnipróf laugavarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði.
- Æskilegt er að umækjandi hafi reynslu af starfsmannahaldi og sé lausnamiðaður og úrræðagóður.
- Þekking umsækjenda á lögum og reglugerðum er varða starfsemi sundlauga er kostur.
- Umsækjandi skal hafa góða íslenskukunnáttu, góða tölvukunnáttu og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
- Mikilvægt er forstöðumaður hafi hæfni og getu til að bregðast við ófyrirséðum aðstæðum.
- Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum er mikilvægur eiginleiki.
Um er að ræða 100% starf. Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2026.
Hreint sakavottorð er skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Elfa Birkisdóttir sviðstjóri: elfa@hveragerdi.is
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar
ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.