Holublástur í Hverahlíð
22.10
Frétt
Hveragerðisbær fékk tilkynningu frá ON varðandi að prófanir á nýrri holu í Hverahlíð voru að hefjast og mun holan blása í eina til þrjár vikur. Þetta er gert til að hreinsa holuna og kanna krafta. Holublástur fer þannig fram að holan er opnuð svo að gufan stígur upp af töluverðum krafti. Þrátt fyrir að hljóðdeyfir sé á holunni fylgir þessu hávaði sem getur heyrst á nálægum svæðum og við vissar veðurfarsaðstæður í Hveragerði. Holan er mjög vatnsmikil og til að draga úr gufunni er henni dreift á tvö blástursop.
Síðast breytt: 22. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?