Fara í efni

Hjólalest í skólann og á bæjarskrifstofuna 22. september.

Á lokadegi samgönguviku munu bæjarfulltrúar leiða svokallaða hjólalest eða hjólastrætó um bæinn. Upphafsstaðsetningar verða frá fimm stöðum í bænum og er þátttakendum frjálst að koma þangað eða bætast við lestina frá heimilum sínum á leið hennar um bæinn.

Markmiðið er að skilja bílinn eftir heima þennan dag fyrir skutlið innanbæjar, hreyfa sig og hafa gaman saman. Fyrirmynd hjólarútunnar er að finna víða, meðal annars á Kársnesi í Kópavogi.

Muna eftir hjálminum og klæða sig eftir veðri!


Síðast breytt: 18. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?