Fara í efni

Hengill Ultra Trail stærsta utanvegahlaup landsins fer fram laugardaginn 7. júní næst komandi í Hveragerði.

Keppendur frá 27 löndum skráðir til leiks í Hengil Ultra
Hlaupaveisla ársins í Hveragerði laugardaginn 7. júní

Hengil Ultra Trail stærsta utanvegahlaup landsins fer fram laugardaginn 7. júní næst komandi í Hveragerði. Þar koma saman bæði byrjendur og flestir öflugustu utanvegahlauparar landsins auk keppenda frá 27 þjóðlöndum og spreyta sig á vegalengdum frá 26 kílómetrum og upp í 106 kílómetrum. Á sama tíma er mikil aðsókn í 5 og 10 kílómetra brautirnar en allar hafa þær sama upphaf og endi í hjarta Hveragerðis.

DANSKA LANDSLIÐIÐ SENDIR STERKA SVEIT
Danska landsliðið í utanvegahlaup sendir sterka sveit kvenna til þátttöku í Hengil Ultra í næstu viku. Allar fjórar hlaupakonurnar eru í fremstu röð innan utanvegahlaup í Danmörku og munu keppa í hinum krefjandi en fallega Hengil. Þetta er i annað sinn sem Danir senda sitt besta fólk til þátttöku.

SÖLUSÝNING OG MIKIÐ UM DÝRÐIR
Það verður mikið um dýrðir í Hveragerði þessa helgi því ekki bara hlaupa um 1400 hlauparar um bæinn þennan dag heldur er dagskrá fyrir öll hvort sem þau hlaupa eða ekki. Það verður sölusýning á varningi tengdum utan vega hlaupum og almennri hreyfingu í íþróttahúsinu og götugrill við endamarkið sem öll eru velkomin í.

Bylgjan verður á svæðinu frá hádegi, Skítamórall mætir í götugrillið um miðjan dag og dj-arnir Doctor Victor og dj. Anna Ármann halda uppi stuðinu.

GÖTURGRILL MEISTARANNA
Götugrilli Hengils Ultra er stýrt af Fannari Geir Ólafssyni matreiðslumeistara og hans fólki í Kjötbúrinu sem er Sælkeraverslun á Suðurlandi. Þar verða framreiddir 120 gr. gourmet hamborgarar og drykkir frá Coca Cola á Íslandi. Keppendur fá ávísun í grillið en gestir og gangandi geta einnig keypt sér veitingar og notið dagsins með keppendunum. Reist verður stórt veitingatjald við endamarkið í tengslum við Götugrillið þar sem hægt verður að njóta veitinganna. Kynnir hlaupsins er eins og venjulega heimakonan Rakel Magnúsdóttir sem kynnt hefur hlaupið síðustu ár af mikilli snilld og alúð.

VÍKING EFTIRPARTÝ OPIÐ ÖLLUM
Þá lýkur dagskránni um kvöldið með partíi í Íþróttahúsinu þar sem Helgi Björns, Pretty Boj tjokkó og Klara Einars koma fram ásamt Doctor Victor og Dj Önnu Ármann. Það er opið öllum og miðasala er í fullum gangi á hengillultra.is.

Búið er að loka fyrir skráningar í 53k og 106k þó eru enn nokkur pláss laus í 5k, 10k og 26k og hægt er að skrá sig inn á hengillultra.is

Víkingamótin - Salomon Hengill Ultra Trail

Á síðunni hengillultra.is er einnig að finna afsláttar kóða fyrir þau sem vilja tryggja sér gistingu á Hótel Örk eða í Gróðurhúsinu. Þá er einnig frábært tjaldstæði í Hveragerði sem er opið allt árið.

Hveragerði verður í hátíðarbúningi alla helgina enda er þetta einn stærsti árlegi viðburðurinn í bænum. Í Hveragerði eru margri frábærir veitingastaðir, mjög góð hótel og frábært tjaldsvæði við hliðina á mótssvæðinu.

Hægt er að skoða, skrá sig og kaupa miða í Víking eftir partíið um kvöldið á vikingamot.is

Dagskrá:

Nánari upplýsingar um flokkana:

106K HENGILL ULTRA
• Dagsetning: 6. júní 2025.
• Ræsing klukkan 18:00.
• Skráningargjald: 46.900 kr.
• Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 36.900 kr.
• Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 29.900 kr.
• Skráningu lýkur kl. 23:59 þann 1. júní 2025.

Innifalið í mótsgjaldi:
• Brautar- og öryggisgæsla.
• Trackerar sem sýna hlaupara í rauntíma.

  • Drykkir og matur á drykkjarstöðvum á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði.
    • Salernisaðstaða á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði.
    • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun.
    • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
    • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
    • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
    • Tímataka og númer.
    • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum.
    * Tímamörk: 1. hringur: 10 tímar, 2. hringur: 12 tímar, endamark: 22 tímar.
    Skyldubúnaður samkvæmt mótaskrá.

    53K HENGILL ULTRA
    • Dagsetning: 7. júní 2025.
    • Ræsing klukkan 08:00.
    • Skráningargjald: 34.900 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 29.900 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 24.900 kr.
    • Skráningu lýkur kl. 23:59 þann 1. júní 2025

    Innifalið í mótsgjaldi:
    • Brautar- og öryggisgæsla.
    • Drykkir og matur á drykkjarstöðvum á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði.
    • Salernisaðstaða á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði.
    • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun.
    • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
    • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
    • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
    • Tímataka og númer.
    • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum.
    * Skyldubúnaður samkvæmt mótaskrá.
    **Tímamörk 12 tímar.

    26K HENGILL ULTRA
    • Dagsetning: 7. júní 2025.
    • Ræsing klukkan 13:00.
    • Skráningargjald: 17.900 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 15.900 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 12.900 kr.
    • Skráningu lýkur kl 23:59 þann 1. júní 2025.

    Innifalið í mótsgjaldi:
    • Brautar- og öryggisgæsla.
    • Drykkir og matur á drykkjarstöðinni í Sleggjubeinsskarði.
    • Salernisaðstaða í Sleggjubeinsskarði.
    • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun.
    • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
    • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
    • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
    • Tímataka og númer.
    • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum.

    10K HENGILL ULTRA
    • Dagsetning: 7. júní 2025.
    • Ræsing klukkan 10:00.
    • Skráningargjald: 9.900 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 7.900 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 6.900 kr.
    • Skráningu lýkur kl. 13:00 þann 8. júní 2025 eða þegar vegalengd er uppseld (500).

    Innifalið í mótsgjaldi:
    • Brautar- og öryggisgæsla.
    • Drykkir á drykkjarstöð við Reykjadalskaffi.
    • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun.
    • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
    • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
    • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
    • Tímataka og númer.

    HENGILL ULTRA 5 KM 5.0 km.
    • Dagsetning: 7. júní 2025.
    • Ræsing klukkan 14:00.
    • Skráningargjald: 6.900 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 5.500 kr.
    • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 3.900 kr.

    Innifalið er í mótsgjaldi:
    • Brautar- og öryggisgæsla.
    • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun.
    • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
    • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
    • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
    • Tímataka og númer.

Síðast breytt: 30. maí 2025
Getum við bætt efni síðunnar?