Gufuhola í Hverahlíð látin blása
13.05
Frétt
Hveragerðisbæ barst tilkynning frá ON.
Föstudaginn 15.maí verður ein gufuhola Orku náttúrunnar í Hverahlíð látin blása. Þetta er gert til að fríska upp á hana og kanna krafta. Holublástur fer þannig fram að holan er opnuð út í hljóðdeyfi svo að gufan stígur upp í loft af töluverðum krafti. Þrátt fyrir að hljóðdeyfir sé á holunni fylgir þessu hávaði sem við vissar veðurfarsaðstæður getur heyrst á einhverjum svæðum í Hveragerði. Gert er ráð fyrir að holan blási til 18.maí.
Síðast breytt: 13. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?