Fyrsta sperran reist við viðbyggingu íþróttahússins
17.07
Framkvæmdafréttir
Framkvæmdir við viðbyggingu íþróttahússins við Skólamörk halda áfram. Í dag var fyrsta sperran reist og markar það mikilvægan áfanga í uppbyggingu nýrrar æfinga- og keppnisaðstöðu fyrir íþróttastarf í bænum.
Á næstu vikum mun uppsetning stálvirkis halda áfram.
Nánar um framkvæmdir við viðbygginguna má finna hér
Síðast breytt: 17. júlí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?