Fara í efni

Frístundamiðstöðin Bungubrekka auglýsir eftir einstaklingum í fjölbreytt störf frístundaleiðbeinanda!

Útfærslur  starfsins, starfshlutfall og fleiri þættir fara eftir umsækjendum, áhuga, styrk og getu þeirra.
Möguleikar á fullu starfshlutfalli, hlutastarfi, afleysingum, framtíðarstarfi, sumarstarfi og allskonar öðrum útfærslum.

Frístundamiðstöðin Bungubrekka er ört stækkandi starfseining og vantar okkur allskonar fólk í allskonar hlutverk til þess að sinna ýmsum verkefnum og taka þátt í framþróun starfsins.

Unnið er út frá starfslýsingum frístundaleiðbeinanda sem eru aðgengilegar á heimasíðu Bungubrekku, en þar má sjá helstu hæfniskröfur, verkefni og almenna lýsingu á starfinu: http://www.bungubrekka.hvg.is.

 

Umsóknir fara fram í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar. Óskað er eftir því að ferilskrá og hreint sakavottorð fylgi með hverri umsókn. 

 

Íbúagátt - sækja um hér

 

Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum um starfið í gegnum tölvupóstinn bungubrekka@hvg.is. Í gegnum tölvupóst er einnig hægt að óska eftir ítarlegri upplýsingum í  gegnum símtal  frá Ingimari Guðmundssyni, forstöðumanni frístundamála.

 

 


Síðast breytt: 16. apríl 2024
Getum við bætt efni síðunnar?