Fara í efni

Framtíð Hamarshallarinnar - tjónabætur 108 m.kr. að lágmarki

Sú ákvörðun að panta nú þegar nýjan dúk á Hamarshöllina í stað þess sem rifnaði í óveðri í febrúar var afar umdeild.  Í ljósi niðurstöðu kosninga og þeirrar miklu umræðu sem fram fór hefur bæjarstjóri átt viðræður við forsvarsmenn Duol sem sýna munu því ríkan skilning ef að nýr meirihluti vill afpanta dúkinn. Því er ljóst að nýr meirihluti ætti ekki að vera bundinn af fyrri ákvörðun og getur því tekið ákvörðun fljótlega um að hefja viðræður um afpöntun á dúk Hamarshallarinnar og hafið samstundis könnun á öðrum valkostum varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði. 

Ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar um endurreisn Hamarshallarinnar sem féll í óveðri þann 22. febrúar  s.l. reyndist afar umdeild og eitt af þeim málum sem helst var deilt um í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga núna í maí.  Þessi ákvörðun var þó eingöngu tekin með hagsmuni íþróttalífs í Hveragerði í huga og þá ekki síst hagsmuni barna og ungmenna enda endurreisn Hamarshallarinnar, að mati meirihlutans, skynsamleg og hagstæð leið til að koma upp góðri íþróttaaðstöðu bæði hratt og með hagkvæmum hætti.  Rétt er að geta þess hér að tilboð hefur borist frá Duol um mun sterkari dúk og hingað kominn mun hann kosta um 88 m.kr..   Jafnframt er rétt að geta þess að fyrstu tölur hafa borist varðandi tjónabætur og er þar gert ráð fyrir að bætur nemi 108 m.kr..   Samningar um endanlegar tjónabætur bíða aftur á móti nýrrar bæjarstjórnar. 

Í ljósi þess mikla áhuga sem bæjarbúar hafa sýnt þessu máli er mikilvægt að þessar upplýsingar liggi fyrir og að ákvarðanir sem teknar verða byggi á þessum staðreyndum. 

Aldís Hafsteinsdóttir 
Bæjarstjóri. 


Síðast breytt: 22. maí 2022
Getum við bætt efni síðunnar?