Félagsráðgjafi í almennri félagsþjónustu – Vertu hluti af öflugu velferðarteymi Hveragerðisbæjar
Velferðarsvið Hveragerðisbæjar óskar eftir metnaðarfullum og lausnamiðuðum félagsráðgjafa til starfa í almennri félagsþjónustu. Leitað er að fagmanneskju sem vinnur af festu, með hlýju og virðingu, og hefur góða innsýn í stöðu einstaklinga og fjölskyldna sem þurfa á stuðningi samfélagsins að halda.
Helstu verkefni:
- Móttaka, mat og úrvinnsla mála sem varða fjárhagsaðstoð, húsnæðismál og aðra félagslega ráðgjöf
- Stuðningsvinna með einstaklingum og fjölskyldum í viðkvæmri stöðu
- Eftirfylgd og gerð einstaklingsáætlana í nánu samstarfi við viðkomandi
- Samvinna við aðrar stofnanir og fagaðila
- Skráning og skjalavarsla í One System og/eða Navision
Hæfniskröfur:
- Próf í félagsráðgjöf og gilt starfsleyfi
- Þekking og/eða reynsla af störfum í sveitarfélagi eða félagsþjónustu er kostur
- Þekking á viðeigandi löggjöf, sérstaklega lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga
- Reynsla eða þekking á One System og Navision er kostur
- Góð samskiptahæfni, fagleg nálgun og lausnamiðuð vinnubrögð
- Sjálfstæði, ábyrgð og skipulagshæfni
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna.
Um er að ræða 100% starf með upphafi 1. september 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Sótt er um starfið í gegnum íbúgátt Hveragerðisbæjar - mannuðsdeild > starfsumsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Erna Harðar Solveigardóttir deildarstjóri velferðarsviðs. Netfang: erna@hvergerdi.is – sími: 483-4000