Fara í efni

Fegurstu garðar Hveragerðis árið 2026

Veittar voru viðurkenningar til eigenda fegurstu garða Hveragerðis 2026 á Listasafni Árnesinga í gær, líkt og hefð er fyrir í upphafi Blómstrandi daga ár hvert. Fjórir fallegir garðar voru verðlaunaðir og verða þeir allir til sýnis á Blómstrandi dögum, sunnudaginn 16. ágúst kl. 15-17.

Ingimar bæjarstjóri ávarpaði verðlaunahafa og gesti í Listasafninu og sagði meðal annars:

„Að búa til fallegan garð er ekki sjálfsagt. Ég ber alltaf gríðarlega virðingu fyrir því fólki sem leggur svo mikla vinnu, alúð og ræktarsemi í garðana sína ár eftir ár. Og það er einmitt það sem þessi viðurkenning snýst um. Hún er þakklætisvottur til þeirra sem fegra ekki aðeins sitt eigið heimili heldur bæinn okkar allan. Við hin njótum þess á hverjum degi að ganga eða aka fram hjá þessum görðum og sjá þann metnað og þann kærleika sem í þeim býr.

Með því að halda þessari fallegu hefð á lofti sendum við jafnframt skýr skilaboð til nýrra íbúa og komandi kynslóða um að við viljum búa í snyrtilegu, grónu og fallegu samfélagi. Það gerist ekki af sjálfu sér heldur vegna þess að fólk tekur þátt og leggur sitt af mörkum.

Þessi athöfn er orðin órjúfanlegur hluti af Blómstrandi dögum og þótt hún sé ekki formleg opnun hátíðarinnar er hún án efa einn af þeim viðburðum sem best fangar anda hennar.

Til hamingju með daginn, til hamingju þau sem hljóta viðurkenningar hér í dag, og takk fyrir að gera Hveragerði enn fallegra samfélag.“

Verðlaunagarðarnir

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um verðlaunagarða ársins og eigendur ásamt rökstuðningi frá Árnýju Guðfinnsdóttur garðyrkjustjóra og Höskuldi Þorbjarnarsyni umhverfisfulltrúa. 

 

Heiðmörk 23 í eigu Mattíasar Ottóssonar

Nýuppgerð lóð með nýbyggðu húsi

Garðurinn er afar skemmtilega hannaður og greinilegt að hugmyndaflug eigandans hefur fengið að njóta sín til fulls! Þrátt fyrir að vera ekki ýkja stór eru þar nokkur fjölbreytt dvalarsvæði.

Garðurinn er óvenjulegur að mörgu leyti en þar má finna mörg falleg beð með bæði fjölæringum og trjáplöntum. í miðju garðsins má finna skemmtilega tjörn með spriklandi fiskum í. Athyglisvert er hvernig hugað hefur verið að öllum smáatriðum, til dæmis hversdagslegum hlutum eins og ruslatunnuskýlunum sem eru listasmíð út af fyrir sig!

Mikið hefur verið lagt upp úr hellulögninni en hún rammar skemmtilega inn einstaka hluta lóðarinnar svo sem trjábeð og göngusvæði.

Hér er því um algerlega einstakan garð að ræða sem sýnir einstakt hugmyndaflug og elju eigandans.

 

Heiðmörk 69 í eigu Guðrúnar Vilborgar Hálfdánardóttur og Sigurjóns Péturs Johnssonar

Álfhólagarðurinn

Hér er um að ræða stóran og vel gróinn garð í hjarta Hveragerðis. Garðurinn er með þeim eldri á þessu svæði og má rekja sögu hans allt aftur til sjöunda áratugarins en íbúðarhúsið þar var byggt árið 1961. Í garðinum má finna mörg myndarleg tré sem sum eru með þeim elstu í bænum. Svo stæðileg tré eru sjaldgæf og gaman að skoða.

Garðeigendur hafa sinnt þessari lóð af miklum myndarskap og skapað sér einstaklega skemmtilega ræktunaraðstöðu í bakgarðinum þar sem tré og plöntur eru ræktuð frá fræjum og græðlingum. Samtímis hafa eigendurnir komið sér upp aðstöðu til moltugerðar sem þau nota svo til að bæta jarðveg og auka gróðursældina í garðinum.

Í litlum hól á skemmtilegum stað í garðinum búa að sögn álfar og má sjá ummerki um þá ef vel er að gáð!

Hér er því um að ræða garð með einhverjum myndarlegustu og fallegustu trjám bæjarins en mörg áhugaverð smáatriði koma í ljós þegar nánar er að gáð.

 

Arnarheiði 26 í eigu Margrétar Sólveigar Traustadóttur

Ævintýragarðurinn

Garðurinn sem hér um ræðir er frekar smár en ótrúlega fjölbreyttur og gróinn garður í hinu fallega Heiðarhverfi í Hveragerði. Rekja má sögu garðsins til tíunda áratugar síðustu aldar en húsið þar var byggt árið 1990.

Hér hafa eigendur útbúið sér lítið ævintýraland þar sem einhvað nýtt birtist á bak við hverja beygju. Vel skipulögð fjölæringabeð hlykkjast um garðinn með fallegum litasamsetningum og allt í röð og reglu. Mörg falleg tré og runnar eru víða í garðinum sem taka á móti manni strax við aðkomuna að húsinu.

Hér er því um að ræða einstaklega snyrtilegan og fjölbreyttan garð á „miðjum aldri“ og kannski ef þú leitar vel sérðu Mjallhvíti og Dvergunum sjö bregða fyrir!

 

Brattahlíð 7 í eigu Örlygs Atla Guðmundssonar og Hólmfríðar G. Magnúsdóttur

Sannkölluð paradís fyrir fjölskylduna.

Þessi garður er afar vel gróinn í hjarta elsta hluta bæjarins. Þetta er garður sem er með þeim elstu í bænum og má rekja sögu hans aftur á fimmta áratug tuttugustu aldar en húsið þar er byggt árið 1949 en það er aðeins þremur árum eftir að bærinn er formlega stofnaður. Í fremri hluta hans er að finna þægilega rólyndis stemmingu með heimatilbúnu dvalarsvæði sem inniheldur flott eldstæði. Þar eru líka nokkur mjög gömul tré frá þeim tíma er Hveragerði var rétt að verða til.

Margt fleira er að sjá í garðinum enda skiptist hann í nokkra hluta og stundum hver inn af öðrum þar sem eitthvað nýtt kemur stöðugt í ljós. Í bakgarði er að finna fallegt fjölskyldu dvalarsvæði, grillaðstöðu og heitan pott og ef horft er upp þá sjáið þið kannski eitthvað skemmtilegt!

Hér er því um að ræða einstaklega heillandi gróðursælan garð þar sem fjölskyldan getur notið sín til fulls.

Innilega til hamingju með viðurkenningarnar!


Síðast breytt: 14. ágúst 2026
Getum við bætt efni síðunnar?