Fagrihvammur skipulagslýsing
Fagrihvammur skipulagslýsing
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á fundi sínum þann 12. júní að auglýsa skipulagslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag á svæði AT3, sem er land Fagrahvamms og Reykjamarkar 22. Svæðið er 4,6 ha og er landnotkun í núgildandi aðalskipulagi athafnasvæði þar sem gert var ráð fyrir blandaðri notkun gróður- og íbúðarhúsa á reitnum. Breytt landnotkun miðast við að svæðið verði íbúðabyggð. Hverfisvernd er meðfram Varmá og verndarákvæði eru einnig á nokkrum trjám innan svæðisins.
Í skipulagslýsingunni kemur fram að markmið tillögunnar er að skapa nýja og fjölbreytta íbúðabyggð, samhliða því að auðga bæinn og mannlífið í nágrenninu. Heimilin í Fagrihvammi eru hugsuð með framtíðina í huga þar sem lífsgæði og jafnvægi við náttúruna eru í forgrunni. Áhersla verður á nútímalega byggingarlist þar sem hagkvæmni og notagildi er haft að leiðarljósi.
Skipulagslýsing - Fagrihvammur
Allar fyrirspurnir skulu berast á netfangið hildur@hveragerdi.is
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar