Deiliskipulag Grundarreitar - íbúafundur
22.10
Frétt
Boðað er til íbúafundar í grunnskólanum mánudaginn 26. október kl. 17 þar sem tillaga að deiliskipulagi Grundarreitar á Heiðmörk 30-36 verður kynnt. Bæjarstjórn samþykkti að endurauglýsa deiliskipulagstillöguna á fundi sínum þann 1. október s.l. og mun Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt hjá ASK arkitektum kynna tillöguna ásamt þeim breytingum sem gerðar hafa verið frá áður auglýstri tillögu.
Deiliskipulagstillagan er nú opin fyrir athugasemdum inni á Skipulagsgátt fram til 13. nóvember undir málsnúmeri 1145/2026. Vefslóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1145
Síðast breytt: 22. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?