Dagskrá Blómstrandi daga 2026
Blómstrandi dagar verða haldnir í 31. sinn dagana 13.-16. ágúst nk. Dagskráin er þétt frá hádegi á fimmtudegi til sunnudagskvölds af alls kyns viðburðum og uppákomum svo það verður úr nógu að velja alla helgina fyrir allan aldur.
Sérstaða Blómstrandi daga felst helst í því hvað íbúar og fyrirtæki taka mikinn og virkan þátt í dagskrá bæjarhátíðarinnar. Það er virkilega ánægjulegt að sjá samstöðuna og áhugann á að bjóða bæði heimamenn og gesti velkomna með metnaðarfullum skreytingum og ýmsum uppákomum og viðburðum um allan bæ.
Hvergerðingar eiga svo sannarlega mikið hrós skilið fyrir að gera Blómstrandi daga að einstakri bæjarhátíð með gleði og gestrisni.
Hér fyrir neðan er hlekkur á dagskrána. Ítarlegri upplýsingar má finna á Facebook, bæði á síðu hátíðarinnar og á sérstökum viðburði fyrir hátíðina í ár.
Skemmtum okkur vel og fallega með allri fjölskyldunni á Blómstrandi dögum um helgina.