Fara í efni

Dagforeldri óskast í Hveragerði

Óskað er eftir dagforeldri í Hveragerði!

Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar, en Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra og ráðgjöf við dagforeldra og foreldra. Allir sem fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þurfa að uppfylla skilyrði sbr. reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu í heimahúsum frá maí 2002.

Hveragerðisbær veitir dagforeldrum starfsleyfi og sinnir ráðgjöf og eftirliti með þeim. Dagforeldrar eru með eigin gjaldskrá og greiðir Hveragerðisbær niður daggæslu skv. ákveðnum reglum. Dagforeldrum stendur einnig til boða að fá upphafsgreiðslu kr. 100.000 og árlega eftir það greiddar aðstöðugreiðslur að upphæð kr. 50.000 til að koma á móts við grunnkostnað.

Hveragerðisbær hefur einnig samþykkt að það dagforeldri sem ræðst til starfa geti ávallt treyst á greiðslur fyrir vinnu sína óháð því hvort að öll pláss eru fullnýtt eða ekki.

Á heimasíðu Hveragerðisbæjar má finna umsókn um að gerast dagforeldri og þar kemur einnig fram hvaða gögnum þarf að skila með umsókn. Hér má finna þessar upplýsingar https://www.hveragerdi.is/Ymsar_upplysingar/Svid_og_deildir/Velferdarsvid/Dagforeldrar/

Frekari upplýsingar veitir  í síma Helga Bryndís Kristjánsdóttir 483-4000.


Síðast breytt: 15. nóvember 2022
Getum við bætt efni síðunnar?