Fara í efni

Bókasafnið í Hveragerði leitar að starfsmanni í fullt starf.

Bókasafnið í Hveragerði leitar að starfsmanni í fullt starf. Um fjölbreytt og skapandi framtíðarstarf er að ræða. Óskað er eftir skipulögðum einstaklingi með ríka þjónustulund og góða tölvukunnáttu. Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg.

Helstu verkefni eru:

  • almenn afgreiðsla og þjónusta við notendur safnsins
  • upplýsingaleit
  • uppröðun, frágangur og umsýsla safnkosts
  • vinna við viðburði og safnaheimsóknir

Hæfnikröfur:

  • rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • reynsla og áhugi á starfi með börnum
  • góð almenn tölvufærni og íslenskukunnátta skilyrði

Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Edda Hrund í síma 483 4531. Umsóknum ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal skilað í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar eða með tölvupósti í netfangið eddahrund@hveragerdi.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2025.

Umsókn í gegnum íbúagátt hér: https://hveragerdi.ibuagatt.is/login.aspx


Síðast breytt: 22. ágúst 2025
Getum við bætt efni síðunnar?