Blómstrandi ruslafötur
Nú má sjá blómstrandi ruslafötur á nokkrum ljósastaurum í Hveragerði en það er gamli Hvergerðingurinn, Hrefna Kristjánsdóttir, sem málaði á föturnar.

Hrefna hafði samband við bæinn fyrr í sumar og óskaði eftir að fá að skreyta föturnar enda eigi bærinn stórafmæli og gaman að hafa blómaskreyttar ruslafötur fyrir Blómstrandi daga.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd tók vel í erindið og í kjölfarið var málið sett af stað. Ákveðið var að byrja á 4-5 fötum til að sjá hvernig verkið kæmi út og nú má finna 5 fyrrum grænar ruslafötur blómstrandi á ljósastaurum í bænum. Sjón er sögu ríkari og hér má sjá sýnishorn af ruslafötunum. Endilega takið eftir þessum skemmtilegu ruslafötum þegar þið gangið um bæinn.
Hrefnu eru færðar þakkir fyrir frumkvæðið og vinnuna sem kemur skemmtilega inn í fegrunarátak bæjarins. Það verður gaman að sjá hvernig verkefnið þróast áfram.


