Blómlegt skilti við bæjarmörkin
Komið er upp nýtt bæjarskilti í grennd við bæjarmörk Hveragerðisbæjar í Kömbunum fyrir ofan bæinn.
Vinnuhópurinn hannaði skiltið var skipaður Hvergerðingunum Hrund Guðmundsdóttur sem er grafískur hönnuður, Bryndísi Eir Þorsteinsdóttur og Valgerði Jóndísi Guðjónsdóttur blómahönnuðum. Starfsmaður hópsins er Sigríður Hjálmarsdóttir menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi bæjarins og hélt hún utan um verkefnið.
Frá upphafi lagði vinnuhópurinn áherslu á að skiltið yrði náttúrulegt og blómlegt í anda Hveragerðisbæjar. Það var því ákveðið að hafa skiltið úr tré og í kjölfarið leitað til nágranna okkar á Snæfoksstöðum eftir góðum efniviði í verkið. Skiltið er smíðað úr greni og var það Hvergerðingurinn Lárus Sigurðsson sem skar út merkið og setti skiltið saman.
Bryndís Eir Þorsteinsdóttir, eða Blómdís, skreytti loks skiltið með blómum og má sjá útkomuna á skiltinu þegar ekið er niður Kambana. Skreytingunni verður svo skipt út eftir árstíðum og verða skiltin því síbreytileg og lífleg að sjá allan ársins hring.
Nú er unnið að uppsetningu sams konar skiltis austan megin við bæinn og verða þau svo lýst upp fyrir veturinn.
