Grunnskólinn óskar eftir umsjónarkennara
30.04
Frétt
Grunnskólinn í Hveragerði leitar eftir umsjónarkennara á yngsta stigi.
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi.
Í skólanum eru um 480 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk. Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026 og hentar starfið öllum kynjum. Frekari uppslýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir aðstorðarskólastjóri í síma 483-0800. Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti: saevar@hveragerdi.is
Frekari upplýsingar á mynd til hægri.
Síðast breytt: 30. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?