Fara í efni

Áskorun til Vegagerðarinnar

Bæjarskrifstofa Hveragerðisbæjar - myndina tók Birgir Helgason
Bæjarskrifstofa Hveragerðisbæjar - myndina tók Birgir Helgason

Bæjarstjórn samþykkti einróma eftirfarandi bókun á fundi þann 10. febrúar 2022:

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar furðar sig á þeirri stöðu sem kom upp í byrjun vikunnar þegar vegurinn um Hellisheiði var lokuður fyrir allri umferð í þrjá sólarhringa. Leita þarf langt aftur í tímann, jafnvel áratugi, til að rifja upp slíkt ástand. Bæjarstjórn skorar á Vegagerðina að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig og að vetrarþjónusta verði eins og best er á kosið.

Bæjarstjórn ítrekar mikilvægi þess að þessari fjölförnu samgönguæð sé haldið opinni sé þess nokkur kostur. Fjölmargir sækja vinnu og/eða skóla á milli Suðurlandsundirlendisins og höfuðborgarsvæðisins og fjölgar sífellt í þeim hópi. Fyrirtæki sinna þjónustu þvert á svæðin og eru greiðar samgöngur þeim mikilvægar. Að síðustu er rétt að minna á að greiðar samgöngur á milli þessara þéttbýlu svæða eru nauðsynlegar vegna öryggis íbúa.

Þessari áskorun bæjarstjórnar hefur verið komið á framfæri við forsvarsmenn Vegagerðarinnar og ráðherra samgöngumála.

Bæjarstjóri. 


Síðast breytt: 11. febrúar 2022
Getum við bætt efni síðunnar?