Fara í efni

Ábendingar um dýr og dýrahald

Undanfarið hafa borist ábendingar frá íbúum um ýmis dýr á flakki, meðal annars mink sem sést hefur á ferð um sveitarfélagið.

Jafnframt berast sveitarfélaginu reglulega upplýsingar um lausagöngu dýra, týnd og fundin gæludýr og önnur atvik sem tengjast dýrahaldi.

Til að sveitarfélagið geti brugðist við með markvissum hætti er mikilvægt að slíkar upplýsingar berist formlega. Samfélagsmiðlar geta verið gagnlegir til að vekja athygli á málum en til þess að hægt sé að skrá upplýsingar og fylgja þeim eftir þurfa ábendingar að berast beint til sveitarfélagsins.

Íbúar eru því hvattir til að senda ábendingar á mottaka@hveragerdi.is. Gott er að fram komi staðsetning, dagsetning, lýsing á atviki og eftir atvikum ljósmyndir eða önnur gögn.

Með því að koma upplýsingum á framfæri með formlegum hætti aukast líkur á að hægt sé að bregðast við málum með markvissum hætti og byggja ákvarðanir á viðeigandi upplýsingum.

Ef um brýnt atvik vegna dýra er að ræða er hægt að hafa samband við dýraeftirlitsmann:
Kristján E. Jónsson
Sími: 863-7149


Síðast breytt: 5. ágúst 2026
Getum við bætt efni síðunnar?