Fara í efni

Skólanefnd

14. fundur 07. maí 2026 kl. 16:00 - 18:20 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir formaður
  • Kristján Sigurmundsson aðalmaður
  • María Rún Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sæbjörg Lára Másdóttir varaformaður
  • Kristinn Ólafsson aðalmaður
  • Vilhjálmur Baldur Guðmundsson fulltrúi Ölfuss
  • Jóel Salómon Hjámarsson fulltrúi foreldra
  • Ólafur Jósefsson Fulltrúi kennara
  • Helga Dögg Snorradóttir fulltrúi Ölfuss
Starfsmenn
  • Elfa Birkisdóttir Deildarstjóri fræðslusviðs
Fundargerð ritaði: Elfa Birkisdóttir deildarstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Innra mat - Bungubrekka

2605004

Liljar Mar Pétursson kynnir innra mat frístundamiðstöðvarinnar Bungubrekku.
Skólanefnd þakkar Liljari Mar Péturssyni forstöðumanni Bungubrekku fyrir kynningu á innra mati frístundamiðstöðvarinnar Bungubrekku. Skólanefnd felur forstöðumanni að leggja fram tillögur vegna fjölgunar barna í frístundastarfi.

2.Innra mat - leikskólinn Undraland

2605003

Anna Erla Valdimarsdóttir leikskólastjóri kynnir niðurstöður skólapúlsins - foreldrakönnun.
Skólanefnd þakkar Önnu Erlu Valdimarsdóttur fyrir kynningu á niðurstöðum skólapúlsins, foreldrakönnun fyrir leikskólann Undraland.

3.Innra mat- leikskólinn Óskaland

2605001

Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri kynnir niðurstöður skólapúlsins - foreldrakönnun.
Skólanefnd þakkar Gunnvöru Kolbeinsdóttur fyrir kynningu á niðurstöðum skólapúlsins, foreldrakönnun fyrir leikskólann Óskaland.

4.Skóladagatöl leikskólanna Undralands og Óskalands 2026-2027

2603053

Anna Erla Valdimarsdóttir leikskólastjóri leikskólans Undralands og Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri leikskólans Óskalands fara yfir skóladagatöl leikskólanna fyrir skólaárið 2026-2027
Skólanefnd samþykkir skóladagatöl leikskólanna Undralands og Óskalands fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunartöku.
Skólanefnd felur sviðstjóra mennta-menningar og lýðheilsusviðs að leggja tillögur fyrir skólanefnd til að koma til móts við þarfir leikskóla, foreldra og barna vegna úfærslu á styttingu vinnuvikunnar.

5.Innra mat - GÍH

2605002

Sævar Þór Helgason skólastjóri kynnir niðurstöður skólapúlsins - foreldrakönnun.
Skólanefnd þakkar Sævari Þór Helgasyni fyrir kynningur á niðurstöðum skólapúls foreldrakönnun auk samtals um skólastarf í Grunnskólanum í Hveragerði.

6.Stoð og stuðningsþjónuusta GÍH - næstu skref

2605007

Elfa Birkisdóttir sviðstjóri mennta-, menningar-, og lýðheilsusviðs og Sævar Þór Helgason skólastjóri kynna næstu skref við þróun stoð- og stuðningsþjónustu í Grunnskólanum í Hveragerði.
Skólanefnd þakkar fyrir kynningu á næstu skrefum í mótun og þróun stoð og stuðningsþjónustu við Grunnskólans í Hveragerði.

7.Skólaþjónusta Hveragerðisbæjar - verkefni og staða

2605005

Elfa Birkisdóttir sviðstjóri mennta-, menningar-, og lýðheilsusviðs kynnir hlutverk og verkefni skólaþjónustu Hveragerðisbæjar.
Skólanefnd þakkar Elfu Birkisdóttur sviðstjóra fyrir kynningu á starfsemi skólaþjónustu Hveragerðisbæjar.
Skólanefnd Hveragerðisbæjar lýsir yfir mikilli ánægju með þann góða árangur sem náðst hefur í þessari markvissu uppbyggingu skólaþjónustu á yfirstandandi kjörtímabili. Ánægjulegt er að sjá biðtími eftir þjónustu hefur minnkað umtalsvert og er nú lítill sem enginn sem og að öflugt teymi fagaðila hjá sveitarfélaginu hefur tryggt að innleiðing farsældarlaganna er komin vel á veg.
Skólanefnd Hveragerðisbæjar fagnar þessari góðu þróun sem hefur bætt þjónustustig skólaþjónustu verulega og tryggt að börn í Hveragerði fái stuðning við hæfi.

8.Til skólanefndar - vegna tilnefningar íslensku menntaverðlaunanna

2605006

Kynnt er erindi frá sambandi íslenskra sveitafélaga um hlutverk skólanefnda og tillögurétt gagnvart Íslensku menntaverðlaunanna.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:20.

Getum við bætt efni síðunnar?