Öldungaráð
Dagskrá
1.Gott að eldast - Kynning á verkefninu og breyttu fyrirkomulagi
2505158
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Undirritaður samningur Gott að eldast.
Minnisblað um tillögur að framtíðarskipan verkefnisins Gott að eldast.
Farið verður yfir tilgang og markmið þróunarverkefnisins Gott að eldast, stöðu verkefnisins í Hveragerðisbæ og þær breytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum vikum.
Sérstök áhersla verður lögð á samþættingu heimastuðnings við þjónustu dvalar- og hjúkrunarheimilið Ás, ásamt breytingum á fyrirkomulagi heimilisþrifa og annarrar stuðningsþjónustu við eldra fólk.

Farið var yfir markmið og tilgang þróunarverkefnisins Gott að eldast, sem miðar að því að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu við eldra fólk með það að markmiði að tryggja heildræna, samfellda og einstaklingsmiðaða þjónustu. Áhersla er lögð á að styðja við sjálfstæði og lífsgæði eldra fólks og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Kynntar voru þær skipulagsbreytingar sem samþykktar voru af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar í september 2026. Þær fela í sér að heimastuðningur við einstaklinga 60 ára og eldri verður að fullu samþættur starfsemi dvalar- og hjúkrunarheimilisins Áss, í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Jafnframt var farið yfir breytt fyrirkomulag heimilisþrifa, þar sem þjónustan verður afmörkuð við þá einstaklinga sem uppfylla skilyrði fyrir aðstoð við heimilisþrif samkvæmt mati á þjónustuþörf. Framkvæmd þjónustunnar verður með breyttu fyrirkomulagi.
Markmið breytinganna er að efla samfellu í þjónustu, þverfaglegt samstarf og betri nýtingu á þekkingu og mannauð í þágu þjónustuþega.
Öldungaráð þakkar fyrir kynninguna og umræður um verkefnið. Ráðið leggur áherslu á að við innleiðingu breytinganna verði tryggð góð upplýsingagjöf til þjónustuþega og aðstandenda þeirra, samfella í þjónustu og regluleg eftirfylgni með áhrifum breytinganna á þjónustu og líðan eldra fólks í sveitarfélaginu.
Öldungaráð leggur áherslu á að það sé umsagnaraðili áður en kemur að breytingum á þjónustu er varðar aldurshópinn 60 .

Fundargerðin upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Getum við bætt efni síðunnar?
Hann leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.