Fasteignafélag Hveragerðis ehf
Dagskrá
María Rún Þorsteinsdóttir formaður stjórnar, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Lán fá Lánasjóði sveitarfélaga.
2608072
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 20. ágúst að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 600 milljónir.
Eftir ábendingu frá endurskoðanda er talið eðlilegra að Fasteignafélag Hveragerðis ehf taki lánið þar sem það er til að fjármagna framkvæmdir sem eru á hendi Fasteignafélagsins.

Stjórn Fasteignafélags Hveragerðis ehf samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 600.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim lánaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Stjórn Fasteignafélags Hveragerðis ehf hefur kynnt sér skilmála viðkomandi lánaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Samþykki þetta nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að Fasteignafélag Hveragerðis ehf taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til framkvæmda á gervigrasvelli og íþróttahúsi. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Helgu Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra, kt.141060-5629, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóðs sveitarfélaga f.h. Fasteignafélags Hveragerðis ehf. Umboðið tekur jafnframt til móttöku, undirritunar, útgáfu og afhendingar allra skjala, fyrirmæla og tilkynninga sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, veitir Hveragerðisbær einfalda ábyrgð, sbr. heimild í 1. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og veðsetur tekjur sínar til tryggingar ábyrgðinni sbr. 2. mgr. 68. gr. sömu laga.

Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 16:50.
Getum við bætt efni síðunnar?