Fara í efni

Bæjarráð

896. fundur 15. október 2026 kl. 08:30 - 12:20 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Birgitta Ragnarsdóttir formaður
  • Sigmar Karlsson varaformaður
  • Lárus Jónsson aðalmaður
  • Marta Rut Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Birgitta Ragnarsdóttir, setur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

1.Erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands

2609136

Lagt er fram bréf frá Starfsgreinasambandi Íslands, dags. 16. september 2026, þar sem óskað er eftir svari við því hvort Hveragerðisbær sé reiðubúinn að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðuleika.
Bæjarráð Hveragerðisbæjar tekur undir mikilvægi þess að stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulíf vinni sameiginlega að því markmiði að draga úr verðbólgu og stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Bæjarráð lagði til á fundi sínum 7. október 2026 að fjárhagsáætlun yrði unnin með þeim hætti að gjaldskrár myndu ekki hækka umfram 2,5%. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma þessari afstöðu á framfæri við Starfsgreinasamband Íslands.

2.Beiðni um styrk vegna afmælistónleika Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna 22. nóvember 2026

2609108

Lagt er fram erindi frá Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna, móttekið 14. september 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna fyrirhugaðra tónleika þann 22. nóvember 2026 sem haldnir verða í tilefni af 80 ára afmæli kórsins.



Bæjarráð tók erindið fyrir þann 17. september s.l. þar sem eftirfarandi var bókað: Bæjarráð óskar Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstandasókna til hamingju með 80 ára afmælið og fagnar um leið framtakinu. Sökum lausafjárstöðu hefur sveitarfélagið almennt hafnað styrkumsóknum undanfarið. Óskað er eftir nánari útlistun á umbeðinni fjárhæð styrksins svo unnt sé að taka skýra afstöðu til málsins.



Þann 11. október 2026 barst framlagður t-póstur frá kórnum þar sem fram kemur nánari skýring á styrkbeiðninni.
Bæjarráð þakkar Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna fyrir erindið og óskar kórnum til hamingju með 80 ára afmælið. Bæjarráð fagnar fyrirhuguðum afmælistónleikum og þakkar boð á þá. Með vísan til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þeirrar almennu framkvæmdar að hafna styrkumsóknum um þessar mundir sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindinu.

Bæjarráð leggur til að viðburðinn fá kynningu á miðlum Hveragerðisbæjar og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að koma því í ferli.

3.Beiðni um styrk í formi auglýsingar í blaðinu Lögreglumaðurinn 2026

2610001

Lagt er fram erindi frá Landssambandi lögreglumanna, móttekið 1. október 2026, þar sem óskað er eftir styrk í formi auglýsingar í blaðið Lögreglumaðurinn 2026.
Bæjarráð þakkar Landssambandi lögreglumanna fyrir erindið og það góða boð sem sveitarfélaginu er veitt um þátttöku í útgáfu blaðsins. Bæjarráð þakkar fyrir það mikilvæga starf sem íslenskir lögreglumenn sinna í þágu samfélagsins og þeirri metnaðarfullu umfjöllun sem fyrirhuguð er í blaðinu. Með vísan til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þeirrar almennu framkvæmdar að hafna styrkbeiðnum og sambærilegum erindum um þessar mundir sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindinu. Bæjarráð óskar útgefendum góðs gengis með útgáfu blaðsins.

4.Beiðni um styrk vegna leikskrár frá Leikfélagi Hveragerðis

2610006

Lagt er fram erindi frá Leikfélagi Hveragerðis, móttekið 28. september 2026, þar sem óskað er eftir styrk í formi auglýsingar í leikskrá félagsins.
Bæjarráð þakkar Leikfélagi Hveragerðis fyrir erindið. Með vísan til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þeirrar almennu framkvæmdar að hafna styrkbeiðnum og sambærilegum kostnaðaraukandi erindum um þessar mundir sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindinu. Bæjarráð óskar félaginu góðs gengis með nýja sýningu og þakkar jafnframt fyrir framlag þess til menningar- og mannlífs í Hveragerði.

Bæjarráð leggur til að viðburðinn fá kynningu á miðlum Hveragerðisbæjar og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að koma því í ferli.

5.Erindi vegna lóðar nr. 52 við Tröllahraun

2610007

Lagt er fram erindi frá Maríusi Kristjáni Bergþórssyni, dags. 30. september 2026, lóðarhafa lóðarinnar Tröllahraun 52, þar sem hann óskar eftir að byggingarréttargjald verði lækkað á lóðinni eins og af öðrum einbýlishúsalóðum við Tröllahraun.
Bæjarráð hefur farið yfir erindið og leggur til við bæjarstjórn að orðið verði við beiðninni. Bæjarráð vísar til þess að bæjarstjórn samþykkti þann 22. september 2026 að úthluta einbýlishúsalóðum við Tröllahraun með 20% byggingarréttargjaldi. Með hliðsjón af jafnræði lóðarhafa og þar sem lóðin Tröllahraun 52 er eina óbyggða einbýlishúsalóðin á svæðinu sem fellur utan þeirrar ákvörðunar leggur bæjarráð til að sömu kjör gildi um lóðina og aðrar sambærilegar einbýlishúsalóðir við Tröllahraun. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóri vinni málið áfram í samráði við lóðarhafa.

6.Beiðni um styrk vegna reksturs Kvennaathvarfs

2610040

Lagt er fram bréf frá Samtökum um kvennaathvarf, móttekið 6. október 2026, þar sem óskað er eftir að Hveragerðisbær veiti samtökunum rekstrarstyrk að fjárhæð kr. 200.000.- fyrir árið 2027.
Bæjarráð þakkar Samtökum um kvennaathvarf fyrir erindið og það mikilvæga starf sem samtökin sinna í þágu kvenna og barna sem búa við ofbeldi. Bæjarráð telur rétt að taka beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027 til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að taka erindið til umfjöllunar við þá vinnu.

7.Beiðni um styrk vegna reksturs Stígamóta

2610049

Lagt er fram erindi frá Stígamótum, dags. 7. október 2026, þar sem óskað er eftir fjárstuðning til reksturs Stígamóta fyrir árið 2027.
Bæjarráð þakkar Stígamótum fyrir erindið og það mikilvæga starf sem samtökin sinna í þágu þolenda kynferðisofbeldis. Bæjarráð telur rétt að taka beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027 til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að taka erindið til umfjöllunar við þá vinnu.

8.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 8. október 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 156. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun. Umsagnafrestur er til og með 22. október nk.
Bréfið lagt fram til kynningar.

9.Beiðni um styrk vegna tónlistarhátíðarinnar Hverafugls

2610060

Lagt er fram erindi frá listrænum stjórnendum Hverafugls, dags. 6. október 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi við hátíðina sem fyrirhugað er að halda dagana 4.-6. júní 2027.
Bæjarráð þakkar fyrir framlagðar upplýsingar um tónlistarhátíðina Hverafugl 2027 og fagnar þeim metnaði og undirbúningi sem fram kemur í erindinu. Bæjarráð fagnar sérstaklega þeim árangri sem náðist með fyrstu hátíðinni árið 2026 og þeirri jákvæðu athygli sem hún vakti fyrir Hveragerði.

Bæjarráð lýsir vilja til áframhaldandi samstarfs við skipuleggjendur hátíðarinnar og er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að styðja við framkvæmd hennar, meðal annars með aðkomu að því að finna hentugar staðsetningar fyrir tónleika og viðburði, sem og öðrum þeim þáttum sem lúta að skipulagi og öryggi hátíðarinnar. Jafnframt tekur bæjarráð jákvætt í ósk um samstarf við Sundlaugina í Laugaskarði.

Bæjarráð felur sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs að vinna málið áfram í samráði við skipuleggjendur hátíðarinnar og óskar eftir því að áfram verði haft náið samráð við menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð tekur jákvætt í beiðni um fjárhagsstuðning vegna hátíðarinnar og telur rétt að hún verði tekin til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs er falið að vinna þann þátt áfram.

Varðandi ósk um gistingu fyrir listafólk hvetur bæjarráð skipuleggjendur til samtals við gisti- og hótelrekstraraðila í sveitarfélaginu, en telur ekki unnt að sveitarfélagið taki að sér að útvega slíka gistiaðstöðu.

Bæjarráð óskar skipuleggjendum velfarnaðar með undirbúning hátíðarinnar og lýsir þeirri von að Hverafugl festi sig í sessi sem reglulegur menningarviðburður í Hveragerði, styrki enn frekar menningar- og mannlíf sveitarfélagsins og verði sjálfbær til framtíðar.

10.Beiðni um styrk vegna reksturs Sigurhæða

2610071

Lagt er fram erindi frá Sigurhæðum, móttekið 12. október 2026, þar sem óskað er eftir styrk frá Hveragerðisbæ að fjárhæð kr. 1.698.792.- á árinu 2027 til reksturs starfseminnar.
Bæjarráð þakkar Sigurhæðum fyrir erindið og það mikilvæga starf þau sinna í þágu þolenda kynbundins ofbeldis á Suðurlandi. Bæjarráð telur rétt að taka beiðni um rekstrarframlag fyrir árið 2027 til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að taka erindið til umfjöllunar við þá vinnu.

11.Breytingar á þjónustu landsbyggðarstrætó

2606090

Lagt er fram bréf frá Vegagerðinni, dags. 9. október 2026, þar sem svarað er fyrirspurn Hveragerðisbæjar vegna fyrirhugaðra breytinga á landsbyggðarstrætó.
Bæjarráð þakkar Vegagerðinni fyrir framlagt svar við fyrirspurn sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðra breytinga á landsbyggðarstrætó. Bæjarráð tekur framkomnar upplýsingar til kynningar. Bæjarráð ítrekar jafnframt mikilvægi þess að horft verði til þess hvernig bæta megi almenningssamgöngur á Suðurlandi og tengingar íbúa Hveragerðisbæjar og annarra sveitarfélaga á svæðinu, jafnt sín á milli sem og við höfuðborgarsvæðið. Mikilvægt er að samgöngumál styðji við áframhaldandi uppbyggingu Suðurlands sem öflugs atvinnu-, þjónustu- og búsetusvæðis. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma afstöðu bæjarráðs á framfæri við Innviðaráðuneytið.

12.Sjóðsstreymisáætlun

2609228

Lögð er fram sjóðsstreymisáætlun Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð hefur farið yfir framlagða sjóðsstreymisáætlun og tekur hana til kynningar. Bæjarráð leggur áherslu á mikilvægi áframhaldandi eftirfylgni með lausafjárstöðu sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að fylgjast áfram náið með þróun sjóðstreymis og upplýsa bæjarráð reglulega um stöðu mála.

13.Fundur með fulltrúum Veitna ohf. vegna uppbyggingar á innviðum

2610062

Eftirtaldir fulltrúar Veitna ohf. koma á fund bæjarráðs til þess að ræða um uppbyggingu innviða.



Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra, Pétur Krogh Ólafsson forstöðumaður og sjálfbærni og öryggi innviða, Tinna Traustadóttir viðskiptastjóri og Brynja Ragnarsdóttir forstöðukona vatnsmiðla.
Bæjarráð þakkar fulltrúum Veitna ohf. fyrir fundinn og framkomnar upplýsingar um uppbyggingu innviða og stöðu mála í Hveragerði. Bæjarráð ítrekar mikilvægi fyrirsjáanleika og upplýsingagjafar varðandi framtíð gufuveitunnar. Bæjarráð óskar eftir áframhaldandi samráði við Veitur ohf. um þróun mála og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir fyrir hönd sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að Veitur ohf. leggi sig fram við að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki og með það að markmiði að halda í efnahagslegan stöðugleika með öðrum opinberum aðilum.

14.Íbúafundur um fjármál Hveragerðisbæjar

2608143

Lagt er fram minnisblað, dags. 12. október 2026, frá Ingimari Guðmundssyni, bæjarstjóra, vegna íbúafundar um fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð ræddi framlagt minnisblað og samþykkir að stefnt verði að því að halda íbúafund um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og gerð fjárhagsáætlunar Hveragerðisbæjar fyrir árið 2027. Bæjarráð samþykkir að íbúafundur verði haldinn mánudaginn 16. nóvember 2026. Bæjarráð leggur áherslu á að fundurinn verði vettvangur upplýsinga, samtals og skoðanaskipta um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráðist í og helstu forsendur komandi fjárhagsáætlunar. Bæjarstjóra er falið að vinna áfram að undirbúningi fundarins á grundvelli þeirra sjónarmiða og ábendinga sem fram komu á fundi bæjarráðs.

15.Staða skipurits og reynsla af innleiðingu

2601108

Lagt er fram minnisblað, dags. 12. október 2026, frá Ingimari Guðmundssyni, bæjarstjóra, vegna stöðu skipurits Hveragerðisbæjar og reynslu af innleiðingu breytinga sem samþykktar voru í febrúar s.l.
Bæjarráð ræddi framlagða kynningu bæjarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs um stöðu skipurits og reynslu af innleiðingu þeirra breytinga sem samþykktar voru í febrúar 2026. Bæjarráð telur mikilvægt að áfram verði unnið að mati á reynslu af skipuritsbreytingunum með hliðsjón af auknum verkefnum sveitarfélagsins, breyttum kröfum til stjórnsýslu og þróun þjónustu við íbúa. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samráði við sviðstjóra sveitarfélagsins og leggja fram tillögur að áframhaldandi þróun skipurits og starfsemi sviðanna eftir því sem tilefni gefst til.

16.Tillaga um íbúafund vegna deiliskipulags á Grundarreit, Heiðmörk 30-36

2510173

Lagt er fram minnisblað, dags. 12. október 2026, frá Ingimari Guðmundssyni, bæjarstjóra, með tillögu um að halda íbúafund vegna deiliskipulags á Grundarreit, Heiðmörk 30-36.
Bæjarráð samþykkir að efnt verði til opins íbúafundar um deiliskipulagstillögu Grundarreitar, Heiðmerkur 30-36, á auglýsingatíma tillögunnar. Markmið fundarins er að kynna þær breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni frá fyrri auglýsingu, veita íbúum vettvang til að koma á framfæri sjónarmiðum sínum og stuðla að auknu gagnsæi og upplýsingagjöf um deiliskipulagstillöguna. Skipulagsfulltrúa er falið að undirbúa og skipuleggja fundinn í samráði við bæjarstjóra.

17.Heimilisþrif fyrir skjólstæðinga heimastuðnings 60 og eldri

2505158

Lagt er fram minnisblað Ernu H. Solveigardóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, og Kolbrúnar Tönju Eggertsdóttur, verkefnastjóra Gott að eldast, dags. 12. október 2026, með tillögu um að Hveragerðisbær fái verktaka til þess að annast heimilisþrif fyrir skjólstæðinga heimastuðnings 60 og eldri á meðan unnið verði að endurmati á þjónustuþörf.
Bæjarráðsfulltrúi Okkar Hveragerði og áheyrnarfulltrúi Framsóknar leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Okkar Hveragerðis og Framsóknar vísa til sameiginlegrar bókunar minnihlutans frá 3. september sl. þar sem lögð var rík áhersla á að tryggja starfsöryggi þeirra fimm starfsmanna sem samþætting við Ás snerti. Það eru mikil vonbrigði að sjá hvernig staðið hefur verið að málum þar sem stöðugildi hjá Ási voru ekki útfærð til að sinna þeim verkefnum sem starfsfólk bæjarins sinnti. Í stað þess er lagt til að einkareknir verktakar taki að sér heimilisþrifin.

Óskað er eftir nánari skýringum á því hvers vegna heimilisþrif eru ekki hluti þeirrar þjónustu sem færist til Áss samhliða tilfærslu stöðugilda Heimastuðnings 60 og eldri. Í minnisblaðinu er vísað til starfsskyldna samkvæmt gildandi ráðningarsamningum, en skýra þarf hvernig tekið var tillit til þessa verkþáttar við undirbúning breytinganna og ákvörðun um fjölda stöðugilda sem færast til Áss. Jafnframt er óskað eftir að upplýst verði hvort kostnaður við kaup á heimilisþrifum af verktaka komi til frádráttar þeim fjármunum sem annars færast til Áss vegna þjónustunnar.

Heimilisþrif hafa hingað til falið í sér ómetanlegt félagslegt innlit og eftirlit með velferð eldri borgara. Að aðskilja ræstingar frá þeim mannlega stuðningi vinnur gegn markmiðum verkefnisins Gott að eldast og er líklegt til að kalla á aukna þörf fyrir félagslega liðveislu. Þá er gert ráð fyrir brattri fækkun á heimilum sem fá aðstoð, úr 77 niður í 27, sem myndi fela í sér gríðarlega þjónustuskerðingu ef ætlunin er að láta dæmið ganga upp.

Lárus Jónsson
Marta Rut Ólafsdóttir

Bæjarráð telur mikilvægt að tryggja samfellu, öryggi og gæði þjónustu við skjólstæðinga Heimastuðnings 60 og eldri á meðan unnið er að endurmati á þjónustuþörf og að þjónustan geti hafist að nýju við fyrsta tækifæri. Bæjarráð samþykkir að heimilisþrif fyrir skjólstæðinga þjónustunnar verði keypt af Hreint ehf. á meðan þeirri vinnu stendur en þó ekki lengur en til 31. desember 2026. Kostnaðurinn rúmast innan fjárhagsáætlunar 2026. Við ákvörðunina er horft til reynslu fyrirtækisins af sambærilegri þjónustu og getu þess til að tryggja faglega og örugga þjónustu með áherslu á samfellu fyrir skjólstæðinga. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við þjónustuaðilann. Jafnframt er lögð áhersla á að niðurstöður endurmats á þjónustuþörf og tillögur um framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar verði lagðar fyrir bæjarráð þegar þær liggja fyrir.

Bæjarráð telur, í ljósi aðstæðna, að þörf sé á því að gripið sé til þessara aðgerða en jafnframt að vandað verði til framtíðarútfærslu á Gott að eldast verkefninu í samvinnu við Ás og HSU sem hafa tekið að sér hlutverk heimastuðnings 60 ára og eldri.

18.Leigusamningur um tjaldsvæði

2610069

Bæjarstjóri gerir grein fyrir gilandi leigusamningi um tjaldssvæði og tillögu um framlengingu á leigutíma.
Bæjarráð ræddi stöðu gildandi leigusamnings um tjaldsvæðið og fyrirliggjandi hugmyndir um framlengingu hans. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram á grundvelli umræðna fundarins og ganga frá samningi við rekstraraðila með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.

19.Tillaga um reglulegar íbúakannanir um afmörkuð málefni

2610070

Lagt er fram minnisblað, dags. 12. október 2026, frá Ingimari Guðmundssyni, bæjarstjóra, með tillögu um að lagðar verði fyrir reglulegar íbúakannanir um afmörkuð málefni er varða starfsemi og þjónustu Hveragerðisbæjar. Í minnisblaðinu er einnig tillaga um að fyrsta könnunin fari fram um upplifun íbúa á hraðatakmarkandi búnaði sem nýlega var settur upp á nokkrum stöðum í bænum.
Bæjarráð tekur jákvætt í tillögu um reglulegar íbúakannanir um afmörkuð málefni sveitarfélagsins og telur að slíkar kannanir geti verið gagnlegt stjórntæki til að efla samráð, bæta upplýsingagjöf og kalla eftir sjónarmiðum íbúa við mótun þjónustu og stefnu sveitarfélagsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra og stafrænum leiðtoga að vinna áfram að innleiðingu verkefnisins í samræmi við framlagt minnisblað og undirbúa fyrstu íbúakönnun sveitarfélagsins um upplifun íbúa af hraðatakmarkandi búnaði í íbúðagötum. Niðurstöður könnunarinnar verði lagðar fyrir bæjarráð að henni lokinni.

20.Samningur við Veiðifélagið Varmár og Þorleifslækjar

2512076

Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu samningaviðræðna við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar og kynnir drög að samkomulagi.
Bæjarráð ræddi framlagða kynningu bæjarstjóra á stöðu samningaviðræðna við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar og fyrirliggjandi drög að samkomulagi. Bæjarráð tekur jákvætt í framkomin drög og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram á grundvelli umræðna fundarins og ljúka samningaviðræðum við veiðifélagið.

21.Verklag og tímalína við gerð fjárhagsáætlunar

2609096

Lagðar eru fram uppfærðar upplýsingar um verklag við fjárhagsáætlunargerð með uppfærðri tímaáætlun fyrir fjárhagsáætlunargerð 2027.
Upplýsingar um verklag eru lagðar fram til kynningar og gerir bæjarráð engar athugasemdir við boðun aukafunda í bæjarstjórn.

22.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa

2609019F

Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 29. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

23.Fundagerð stjórnar Bergrisans bs.

2602060

Lögð er fram fundargerð stjórnar Bergrisans bs. frá 5. október 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

24.Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs.

2602003

Lögð er fram fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs. frá 22. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

25.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð er fram fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 12:20.

Getum við bætt efni síðunnar?