Bæjarráð
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Birgitta Ragnarsdóttir, setur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.
1.Trúnaðarmál
2610013
2.Beiðni um styrk frá Hollvinasamtökum Reykjalundar
2609138
Lagt er fram bréf frá Hollvinasamtökum Reykjalundar, móttekið 17. september 2026, þar sem óskað er eftir styrk fyrir uppbyggingu á húsakosti Reykjalundar.
Bæjarráð þakkar Hollvinasamtökum Reykjalundar fyrir erindið og það mikilvæga starf sem unnið er í þágu uppbyggingar á Reykjalundi. Með vísan til fjárhagstöðu sveitarfélagsins og fyrirliggjandi forgangsröðunar verkefna sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni.
3.Bréf frá Fjársýslu ríkisins varðandi stofnun á Samtökum opinberra innkaupaaðila
2609139
Lagt er fram bréf frá Fjársýslu ríkisins, móttekið 16. september 2026, með boði á stofnfund Samtaka opinberra innkaupaaðila auk fundargerðar stofnfundar þann 1. október 2026.
Upplýsingarnar eru lagðar fram til kynningar. Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sótti stofnfundinn fyrir hönd Hveragerðisbæjar og felur bæjarráð sviðsstjóranum að fylgjast með framvindunni og leggja mat á aðild að samtökunum.
4.Bréf frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
2601116
Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 17. september 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 5. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar frumvarp til sveitarstjórnarlaga. Umsagnarfrestur var til og með 1. október 2026.
Bréfið er lagt fram til kynningar.
5.Bréf frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
2601116
Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 17. september 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 4. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026.
Bréfið er lagt fram til kynningar.
6.Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa þann 15. nóvember n.k.
2609184
Lagt er fram bréf frá Innviðaráðuneytinu, dags. 15. september 2026, þar sem minnt er á alþjóðlegan minningardag Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem haldinn verður sunnudaginn 15. nóvember n.k. Dagurinn er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert og tileinkaður minningu þeirra sem hafa látist í umferðarslysum.
Bæjarráð tekur erindið til kynningar og fagnar þeirri vitundarvakningu sem alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa stuðlar að. Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að taka málið til skoðunar og miðla viðeigandi upplýsingum til aðila og stofnana innan sveitarfélagsins.
7.Bréf frá Úrvinnslusjóði um greiðslur fyrir hreinsun
2609188
Lagt er fram bréf frá Úrvinnslusjóði, dags. 22. september 2026 þar sem upplýst er um fyrirkomulag greiðslna til sveitarfélaga vegna hreinsunar plastvara á víðavangi og úr ruslabiðum árin 2025 og 2026.
Bæjarráð samþykkir að fela umhverfisfulltrúa að sækja um styrkinn fyrir hönd Hveragerðisbæjar.
8.Bréf frá Stefnu hugbúnaðarhúsi vegna vefsíðu Hveragerðisbæjar
2609047
Lagt er fram bréf frá Stefnu hugbúnaðarhúsi, dags. 6. mars 2026, þar sem tilkynnt er um að kerfið Moya þar sem heimasíða Hveragerðisbæjar er unnin, fari í viðhaldsham þann 1. janúar 2028. Heimasíðan heldur fullri virkni þrátt fyrir að kerfi fari í viðhaldsham og áfram verður unnt að reka heimasíðuna í kerfinu.
Bæjarráð samþykkir að fela stafrænum leiðtoga að leggja fram minnisblað með tillögu að næstu skrefum varðandi þróun og framtíðarskipan vefmála sveitarfélagsins. Minnisblaðið skal m.a. fjalla um valkosti, áætlaðan kostnað, tímalínu og framkvæmd verkefnisins. Minnisblaðið skal lagt fyrir bæjarráð haustið 2027 þannig að unnt sé að taka ákvörðun um verkefnið í fjárhagsáætlunargerð.
9.Erindi vegna lóða við Álfafell og Álfaklett
2609187
Lagt er fram erindi frá Hæðum þróunarfélagi ehf., dags. 29. september 2026, vegna lóða við Álfafell og Álfaklett.
Erindið er lagt fram til kynningar og umræðu. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
10.Tillaga Okkar Hveragerði um samstarf við Reykjaböðin
2609120
Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá fulltrúa Okkar Hveragerði:
Dagskrárliður: Samstarf við Reykjaböðin um árskort og íbúakjör.
Greinargerð: Lögð er fram tillaga um að bæjarráð feli bæjarstjóra að hefja formlegar viðræður við forsvarsmenn Reykjabaðanna um mögulegan samstarfssamning sem myndi tryggja íbúum Hveragerðisbæjar árskort eða hagstæð íbúakjör í böðin, með það að markmiði að efla lýðheilsu og tryggja að bæjarbúar njóti beins ávinnings af uppbyggingunni í nærumhverfinu.

Bæjarráðsfulltrúi Okkar Hveragerði leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Okkar Hveragerðis fagna því að framlögð tillaga okkar um samstarf við Reykjaböðin hafi nú þegar hreyft við málinu og skilað íbúum tímabundnum afslætti. Slík markaðsherferð til eins mánaðar kemur þó ekki í stað þess framtíðarsamstarfs sem tillagan kveður á um. Markmið erindisins er að tryggja varanleg íbúakjör og árskort til að efla lýðheilsu og tryggja að bæjarbúar njóti beins ávinnings af uppbyggingunni í nærumhverfinu til lengri tíma litið. Við leggjum því til að tillagan verði samþykkt og bæjarstjóra verði formlega falið að halda áfram viðræðum sem tryggja varanleg kjör fyrir bæjarbúa.
Bæjarráðsfulltrúar D-lista og S-lista leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti bæjarráðs fagnar þeim áherslum sem forsvarsmenn Reykjabaðanna hafa kynnt um sérstök íbúakjör fyrir íbúa Hveragerðisbæjar. Verðlagning og kjör eru á forræði rekstraraðila.
Bæjarráðsfulltrúi Okkar Hveragerði greiðir atkvæði með tillögunni. Bæjarráðsfulltrúar D-lista og S-lista greiða atkvæði gegn tillögunni og er tillagan því felld.

11.Samningur við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar
2512076
Lögð eru fram vinnugögn er varða stöðu samningaviðræðna við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar vegna greiðslu bóta vegna veiðibanns í Varmá.
Bæjarstjóri kynnti stöðu samningaviðræðna við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar vegna greiðslu bóta í tengslum við veiðibann í Varmá og yfirfór uppfærð samningsdrög sem lögð verða fyrir veiðifélagið. Bæjarráð felur bæjarstjóra að halda áfram viðræðum á grundvelli þeirra áherslna sem fram komu á fundinum og leggja málið aftur fyrir bæjarráð þegar frekari framvinda liggur fyrir.
12.Minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs vegna reglugerðar um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
2606147
Lagt er fram minnisblað Ernu Harðar Solveigardóttur, ódagsett, þar sem lagt er mat á áhrif reglugerðar nr. 700/2026 á Hveragerðisbæ.
Minnisblaðið er lagt fram til kynningar. Bæjarráð þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir greinargott mat á áhrifum reglugerðar nr. 700/2026 á starfsemi sveitarfélagsins.
Bæjarráð tekur undir það mat sem fram hefur komið af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga um að reglugerð nr. 700/2026 geti haft í för með sér auknar skyldur og fjárhagsleg áhrif fyrir sveitarfélög án þess að fyrir liggi fullnægjandi skýringar á kostnaðarþátttöku ríkisins eða framkvæmd einstakra ákvæða hennar. Bæjarráð leggur áherslu á að breytingar á þjónustu og úrræðum fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir verði unnar í góðu samráði við sveitarfélög og að tryggð verði full fjármögnun þeirra verkefna sem sveitarfélögum eru falin til þess að hægt sé að tryggja viðeigandi þjónustu.

13.Greiðslur fyrir setu í bæjarstjórn, bæjarráði, nefndum og ráðum
2609237
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs fer yfir forsendur launagreiðslna bæjarfulltrúa, bæjarráðsfulltrúa, nefnda og ráða Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að forsendur greiðslna til bæjarstjórnar, bæjarráðs, nefnda og ráða Hveragerðisbæjar á árinu 2027 verði óbreyttar, þar sem þær eru reiknaðar sem hlutfall af þingfararkaupi, líkt og tíðkast hefur.
14.Tillaga frá Okkar Hveragerði varðandi endurskoðun á greiðslufyrirkomulagi gjalda sveitarfélagsins
2609103
Lagt er fram minnisblað frá Helgu Kristjánsdóttur, skrifstofustjóra, dags. 2. október 2026.
Bæjarráð þakkar skrifstofustjóra fyrir greinargott minnisblað. Bæjarráð telur að þrátt fyrir lækkun á þjónustugjöldum vegna kortagreiðslna sé áfram verulegur kostnaður fólginn í boðgreiðslusamningum með greiðslukortum samanborið við aðrar greiðsluleiðir. Bæjarráð felur skrifstofustjóra að undirbúa afnám boðgreiðslusamninga með greiðslukortum vegna fasteignagjalda og annarra reglulegra gjalda sveitarfélagsins á vormánuðum 2027 og sjá til þess að notendum verði kynntar aðrar greiðsluleiðir með góðum fyrirvara.
15.Upplýsingar vegna hreinsunarviku 6.-12. júlí 2026
2606097
Lagt er fram minnisblað Höskuldar Þorbjarnarsonar, umhverfisfulltrúa, dags. 2. október 2026, vegna hreinsunarviku.
Bæjarráð þakkar umhverfisfulltrúa fyrir greinargott minnisblað og fagnar þeim árangri sem hreinsunarvikan skilaði. Að mati bæjarráðs sýna viðbrögð íbúa og þátttaka í verkefninu að tilefni sé til að skoða hvort festa megi slíkt átak í sessi sem árlegan viðburð í sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram og leggja fram heildstæða tillögu fyrir janúar 2027 um fyrirkomulag hreinsunarviku í Hveragerði. Í tillögunni verði m.a. fjallað um markmið verkefnisins, framkvæmd, kostnað, tímasetningu, upplýsingagjöf og samstarf við íbúa, félagasamtök og fyrirtæki. Jafnframt verði skoðað með hvaða hætti sveitarfélagið geti stutt íbúa við að fjarlægja stærri hluti og bæta umhirðu nærumhverfis með sanngjörnum og hagkvæmum hætti þannig að ávinningurinn nýtist samfélaginu öllu. Bæjarráð leggur áherslu á að við undirbúning verkefnisins verði jafnframt horft til aðgerða sem draga úr hættu á misnotkun úrræðisins eins og kemur fram í minnisblaði umhverfisfulltrúa.

16.Breytingar á þjónustu landsbyggðarstrætó
2606090
Lagt er fram bréf Hveragerðisbæjar til Vegagerðarinnar, dags. 28. ágúst 2026. Afrit af bréfinu var sent Innviðaráðuneytinu.
Bréfið er lagt fram til kynningar. Þar sem ekki hefur borist svar við erindi Hveragerðisbæjar felur bæjarráð bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni og Innviðaráðuneytinu.
17.Kynning á verklagi og drög að tímaáætlun fyrir fjárhagsáætlunargerð
2609096
Lagðar eru fram upplýsingar um verklag við fjárhagsáætlunargerð, ásamt tímaáætlun fyrir fjárhagsáætlunargerð 2027.
Upplýsingarnar eru lagðar fram til kynningar og umræðu. Bæjarráð fór yfir drög að verklagi og tímalínu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 og kortlagði helstu lykildagsetningar og áfanga í áætlunarferlinu. Bæjarráð lýsir ánægju með þann undirbúning sem þegar hefur átt sér stað við fjárhagsáætlunargerð næsta árs. Lagt er upp með að öll bæjarstjórn vinni fjárhagsáætlun í sameiningu þar sem að gjaldskrár muni ekki hækka umfram 2,5%.
18.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
2609010F
Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 18. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
19.Verkfundargerðir - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi
2603009
Lagðar eru fram verkfundargerðir frá 17. september 2026 og 1. október 2026, vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.
20.Fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
2601140
Lögð er fram fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá 4. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum úr 11% í 24%. Baðlón eru mikilvægur hluti af ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi. Í landshlutanum telur fjárfesting í starfsemi baðlóna og tengdum rekstri yfir 35 milljarða króna beint og þau skapa rúmlega 400 heilsársstörf. Þá er ótalin sú óbeina og afleidda fjárfesting og fjöldi starfa sem skapast hefur vegna baðlónanna. Hveragerðisbær hefur lagt í umtalsverða vinnu og tekið á sig ýmsar skuldbindingar vegna skipulags, veitna og annarrar innviðauppbyggingar til að veita baðlónum brautargengi. Fyrirhuguð skattahækkun breytir ekki aðeins rekstrarumhverfi fyrirtækjanna heldur grefur jafnframt undan þeirri atvinnuuppbyggingu sem sveitarfélagið hefur stutt og fjárfest í. Bæjarráð leggst alfarið gegn fyrirhugaðri virðisaukaskattshækkun á aðgang að baðlónum og krefjast þess að hún verði dregin til baka.

21.Verkfundargerð Hrauntunga - Tröllahraun
2602049
Lögð er fram uppfærð verkfundagerð frá 3. september 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
22.Fundagerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.
2604017
Lagðar eru fram fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs. frá 17. september 2026 og 25. september 2026.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.
23.Fundargerð Almannavarnanefndar Árnessýslu
2609195
Lögð er fram fundargerð Almannavarnanefndar Árnessýslu frá 18. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
24.Fundargerð stjórnar Tónlistaskóla Árnesinga bs.
2609242
Lögð er fram fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs. frá 28. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
25.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2602011
Lögð er fram fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
26.Fundagerð stjórnar Bergrisans bs.
2602060
Lögð er fram fundargerð stjórnar Bergrisans bs. frá 14. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Getum við bætt efni síðunnar?