Fara í efni

Styrkleikarnir 2022

Íþróttasvæðið á Selfossi 29. apríl

Takið þátt í Styrkleikunum?

Dagana 29 - 30 apríl verða haldnir Styrkleikarnir á Selfossi, þessa dagana erum við að hvetja fólk til að skrá sig til leiks. 

Styrkleikarnir eru sólarhringsviðburður sem er táknrænt fyrir að það fæst engin hvíld frá krabbameini. Sá sem tekst á við krabbamein gerir það allan sólarhringinn.

Viðburðurinn er opinn öllum sem vilja sýna stuðning í verki og þátttaka er ókeypis. Fjölskyldur, fyrirtæki, félagasamtök eða aðrir skrá sig sem lið og vinna saman að því að hafa liðsfélaga á hreyfingu með boðhlaupskefli allan sólarhringinn. Styrkleikarnir snúast um samstöðu, samveru og samtakamátt liðanna í að styðja, heiðra eða minnast einstaklinga sem hafa fengið krabbamein. Styrkleikarnir eru þegar haldnir í yfir 30 löndum og í um 4500 bæjarfélögum um allan heim til þess að safna fé til rannsókna á krabbameinum og til þess að veita fólki með krabbamein og aðstandendum þess ráðgjöf og þjónustu. Viðburðurinn er alltaf skipulagður í nærsamfélagi og undirbúinn og framkvæmdur að langmestu leyti af sjálfboðaliðum.

Frekari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðunni www.styrkleikarnir.is.

Styrkleikarnir eru haldnir af sjálfboðaliðum til að sýna stuðning, safna fé til rannsókna á krabbameinum og til þess að veita krabbameinsgreindum ráðgjöf og þjónustu.

Getum við bætt efni síðunnar?