Fara í efni

Hengill Ultra

9.-10. jún

Salomon Hengill Ultra Trail verður nú haldin í tólfta sinn dagana 9. og 10. júní 2023. Á þessari stórbrotnu hlaupaleið voru yfir 1300 þátttakendur sem tóku þátt í síðasta hlaupi sem gerir Hengill Ultra að stærsta utanvegarhlaupi Íslands.

Boðið verður uppá fjölbreyttar hlaupaleiðir; 5km, 10km, 26km, 53km og 106km. Einnig eru stórskemmtilegar miðnætur útgáfur af 10km, 26km og 53 km vegalengdunum. Í miðnæturhlaupunum eru aðeins 100 skráningar í 26km og 53km og 200 í 10km.

Byrjunarreitur allra vegalengda og mótsstjórn verður í miðbæ Hveragerðis. Styttri vegalengdirnar eru í kringum Hveragerði og upp að Hamrinum sem er gríðarlega fallegur hraunhamar yfir bænum. 25km vegalengdin er upp Reykjadalinn upp að Ölkelduhnjúk og í kringum hann. 50km hlauparar hlaupa hinsvegar áfram inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð og þaðan til baka. Þeir sem hlaupa 106km fara þá leið tvisvar. Útsýnið frá Hengli er algjörlega einstakt og er þessi hlaupaleið ein sú fallegasta sem hægt er að finna á Íslandi.

Á meðan Hengill Ultra er í gangi þá breytist Hveragerði í hlaupa karnival með sölusýningu í íþróttahúsinu. Þar verða einnig allir brautarfundir fyrir hverja vegalengd fyrir sig ásamt verðlaunaafhendingu. Hveragerði ljómar öll og hefur nóg upp á að bjóða fyrir gesti.

Skráning hefst 5. desember 2022 kl. 12:00

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Víkingamótaraðarinnar 

Getum við bætt efni síðunnar?