Litla listasýningin - Húsin í Hveragerði
Bókasafnið í Hveragerði
21.-22. okt
Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar er bæjarbúum boðið að koma og mála litla mynd af húsinu sínu.
Það eru tvær dagsetningar í boði:
miðvikudagur 21. október kl. 15-17
fimmtudagur 22. október kl. 15-17
Starfsmaður verður á staðnum til að leiðbeina. Myndirnar verða til sýnis á bókasafninu fram til 16. nóvember en eftir það má sækja þær til okkar.
Getum við bætt efni síðunnar?