Fara í efni

„Það gefur á bátinn…“

Reykjadalsskáli 3. október | 17:00-19:00

Endurfundir við Kristján frá Djúpalæk og dægurlögin

Kristján Einarsson frá Djúpalæk bjó í Hvergerði frá 1950 til 1962. Auk þess að vera gott skáld í hefðbundnum skilningi, orti hann texta við mörg vinsæl dægurlög; Sjómannavalsinn, Þórð sjóara, Nótt í Atlavík, Vor í Vaglaskógi og mörg fleiri sem hljómuðu oft í óskalagaþáttum ríkisútvarpsins á þessum árum. Flesta þessara texta samdi Kristján í Hveragerði.

Hljómsveitin Djúpilækur, sem hefur sérhæft sig í lögum við texta Kristjáns, mun leika þau og syngja í Reykjadalsskálanum 3. október kl. 17.

Þar sem af mjög miklu er að taka mun sveitin halda sig að mestu við texta sem Kristján ætlaði til dægurlagabrúks og komu út í kverinu „Það gefur á bátinn“. Hljómsveitin flytur tvö ný lög eftir Írisi Jónsdóttur.

Halldór Gunnarsson, einn hljómsveitarmeðlima, þekkti Kristján vel, enda heimagangur á heimili Kristjáns og Unnar konu hans fyrstu 12 æviár sín.

Á milli laga mun Halldór segja stuttlega frá þeim kynnum, ræða hvað bjó að baki þessum áhuga Kristjáns á að taka þátt í „lágmenningunni“, tengsl hans við lagahöfunda, tilurð texta og ýmislegt fleira sem sneri að þessari iðju Kristjáns.

Auk Halldórs, sem leikur á harmonikku, hljómborð og munnhörpu, eru í Djúpalæk þau Íris Jónsdóttir, söngkona og tónskáld, Haraldur Þorsteinsson, bassaleikari, Sigurður Reynisson trommuleikari og Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari. Allt fólk sem á sér farsæla sögu í tónlistinni.

Getum við bætt efni síðunnar?