Bókaklúbbur
Bókasafnið í Hveragerði
29. október | 17:00-18:00
Bókaklúbbur bókasafnsins hittist næst fimmtudaginn 29. október kl. 17. Við munum spjalla saman um bókina Taumhald á skepnum eftir Magnus Mills.
Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.
Um bókina:
Bókin fjallar um þriggja manna hóp skoskra farandverkamanna sem sendur er út til Englands til að leggja girðingar. Þeir eru ákaflega tortryggnir á allt enskt. Breski strætóbílstjórinn Magnus Mills var tilnefndur til Booker verðlaunanna fyrir þessa fyrstu skáldsögu sína. Hann þykir hafa slegið nýjan tón í breskri skáldsagnagerð með bókinni; frásögnin er afar knöpp, uppákomurnar í bókinni eru með ólíkindum og húmorinn kolsvartur. Ísak Harðarson þýddi.
Getum við bætt efni síðunnar?