Fara í efni

Bókaklúbbur

Bókasafnið í Hveragerði 24. september | 17:00-18:00

Fyrsti hittingur bókaklúbbs bókasafnsins þennan veturinn verður fimmtudaginn 24. september kl. 17.
Við munum spjalla saman um bókina Merking eftir Fríðu Ísberg.

Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Áhugasöm geta nálgast eintök af bókinni í afgreiðslu bókasafnsins.

Um bókina:
Skáldsagan Merking er margradda verk sem fjallar um afstöðu og pólaríseringu, fordóma og samkennd. Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til samkenndarprófsins, byltingarkenndrar tækni sem spáð getur fyrir um andfélagslega hegðun; annar helmingurinn vill öruggara samfélag, hinn vill réttlátt samfélag. Aðalpersónur sögunnar hafa öll þurft að laga sig að nýjum siðferðisgrundvelli samfélagsins og fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla sem sker úr um hvort fólki verði gert skylt að gangast undir prófið. Fríða Ísberg gat sér góðan orðstír fyrir ljóðabækurnar Slitförin og Leðurjakkaveður, og smásagnasafnið Kláða sem tilnefnt var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Merking er fyrsta skáldsaga hennar.

Getum við bætt efni síðunnar?