Fara í efni

Viltu taka þátt í að móta Hveragerði fyrir öll?

Vilt þú hafa áhrif á þjónustu, aðgengi og réttindi fatlaðs fólks í Hveragerði?

Hveragerðisbær óskar eftir fulltrúa hagsmunasamtaka í samráðshóp fatlaðs fólks í Hveragerði. Við leitum að áhugasömum einstaklingi sem vill leggja sitt af mörkum til að gera Hveragerði að enn betra samfélagi fyrir öll.

Samráðshópur fatlaðs fólks er mikilvægur vettvangur þar sem raddir fatlaðs fólks eða aðstandenda þeirra fá að heyrast og sjónarmið þess geta haft áhrif á ákvarðanir sveitarfélagsins.

Hópurinn starfar sem lögbundið notendaráð og hefur það hlutverk að stuðla að virku samráði við notendur þjónustu sveitarfélagsins um málefni sem varða þjónustu, réttindi, aðgengi, jafnrétti og þátttöku í samfélaginu.

Hvað felur þátttakan í sér?

  • Þátttöku í sex fundum yfir veturinn.
  • Tækifæri til að koma skoðunum, reynslu og ábendingum á framfæri.
  • Að taka þátt í umræðum um málefni sem snerta fatlað fólk í sveitarfélaginu.
  • Að geta lagt til málefni sem samráðshópurinn tekur til umfjöllunar.
  • Að vera málsvari sjónarmiða og hagsmuna fatlaðs fólks og stuðla að því að þau fái vægi í ákvarðanatöku.

Fulltrúar fá fundargögn fyrir fundi og greitt er fyrir fundarsetu samkvæmt reglum Hveragerðisbæjar um nefndarstörf.

Hver getur tekið þátt?

Við leitum að einstaklingi með lögheimili í Hveragerði sem hefur áhuga á réttindum og hagsmunum fatlaðs fólks og er tilbúinn að taka þátt í samstarfi og samtali fyrir hönd hagsmunasamtaka.

Ekki er þörf á sérstakri þekkingu á stjórnsýslu eða reynslu af nefndarstörfum. Það sem skiptir mestu máli er áhugi, vilji til þátttöku og að koma sjónarmiðum fatlaðs fólks á framfæri.

Með þátttöku í samráðshópnum gefst tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og stuðla að samfélagi þar sem allir hafa tækifæri til þátttöku á eigin forsendum.

Við hvetjum áhugasama til að gefa kost á sér og taka þátt í að móta Hveragerði fyrir öll!

Við hvetjum áhugasama til að hafa samband við Nínu Kjartansdóttur, ráðgjafarþroskaþjálfa og starfsmann samráðshópsins, til að fá nánari upplýsingar eða lýsa yfir áhuga á þátttöku.

Sími: 483-4000
Netfang: ninak@hveragerdi.is

Láttu rödd þína heyrast og taktu þátt í að móta Hveragerði fyrir öll!

Hér er auglýsingin á auðlesnu máli

- hvað er auðlesið mál?

Þú þarft að búa í Hveragerði til að geta tekið þátt.

Hvað er samráðshópur?

Samráðshópurinn talar um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði.

Á fundunum er til dæmis talað um:

  • þjónustu
  • aðgengi
  • réttindi
  • að taka þátt í samfélaginu
  • önnur mál sem eru mikilvæg fyrir fatlað fólk

Markmiðið er að fatlað fólk fái að segja hvað því finnst. 

Markmiðið er líka að fatlað fólk geti haft áhrif á það sem sveitarfélagið ákveður.

Hvað gerir fulltrúinn?

  • Fulltrúinn mætir á fundi samráðshópsins.
  • Fulltrúinn tekur þátt í umræðum.
  • Fulltrúinn segir frá því sem er mikilvægt fyrir fatlað fólk.
  • Fulltrúinn getur líka sagt hagsmunasamtökum frá því sem er rætt á fundunum.

Það verða um 6 fundir í vetur.

Þú færð borgað fyrir að mæta á fundina.

Hvað þarft þú að gera?

Þekkir þú einhvern sem gæti verið fulltrúi í samráðshópnum? Við biðjum þig um að velja þann aðila.

Ef þú veist um einhvern, sendu okkur þá þessar upplýsingar:

  • Nafn
  • Símanúmer
  • Netfang

Þá getum við haft samband og spurt hvort manneskjan vilji vera með.

Ef þú hefur áhuga geturðu haft samband við Nínu Kjartansdóttur, ráðgjafarþroskaþjálfa og starfsmann samráðshópsins í síma eða með tölvupósti
📞 483-4000

📧 ninak@hveragerdi.is

 


Síðast breytt: 19. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?