Viðbygging við Óskaland hlýtur hönnunarverðlaun
Viðbyggingin við Óskaland vann nýlega verðlaun í Eistlandi The Prefab House of the Year 2026 fyrir besta verksmiðjuframleidda timburhúsið í flokknum besta opinbera byggingin.
Byggingin er hönnuð af marimo arkitektum fyrir Hveragerðisbæ og Eik fasteignafélag. Framleiðendurnir hjá Timberco tóku við verðlaununum og settu á samskiptamiðla sína @timbercowoohouse. Þar kemur fram úrdráttur úr umsögn dómnefndar. Í íslenskri þýðingu lagði dómnefnd áherslu á úthugsaðan arkitektúr, þar sem áhersla er á hönnun án aðgreiningar og nútímalega nálgun gagnvart námsumhverfi. Pastelgrænt ytra byrði, sterk tenging milli inni- og útisvæða og hlýlegar viðarinnréttingar skapa notalegt námsumhverfi fyrir börn.
Sjá hér: https://woodhouse.ee/et/aasta-parim-tehasemaja-on-loodusmaja-taru-puitfassaad/
Vefsíða: https://marimo.is/