Fara í efni

Hjólastrætó og stuð

Frábær stemning var í morgun þegar fjölmennur hjólastrætó, leiddur af bæjarfulltrúum í bæjarstjórn, hjólaði frá austur- og vesturhluta bæjarins áleiðis í grunnskólann. Þar tók dúndrandi tónlist við brosandi hjólreiðakrökkum og bæjarfulltrúum.

Viðburðurinn var haldinn á lokadegi samgönguviku sem staðið hefur yfir frá 16. september og nær hámarki með bíllausa deginum í dag. Talið er að allt að 200 hjólagarpar hafi hjólað í hjólastrætó í skólann í morgun sem hefur sparað heilmikið skutl.

Ókeypis er í strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag en því miður er ekki ókeypis með landsbyggðarstrætó eins og hefur verið undanfarin ár.


Síðast breytt: 22. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?