Fara í efni

Evrópsk samgönguvika

Árleg evrópsk samgönguvika sem stendur yfir 16.-22, september er hafin. Vikan er haldin til að hvetja fólk á ferð til að nota fjölbreytta ferðamáta sem eru í senn hagkvæmir og heilsusamlegir.​ Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi og þema vikunnar að þessu sinni er Samgöngur fyrir öll.

Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga. Í Hveragerði verður farin hjólarúta í skólann og á bæjarskrifstofu á bíllausa deginum þann 22. september. Viðburðurinn verður auglýstur nánar síðar en nálgast má upplýsingar um dagskrá samgönguvikunnar á Facebook-síðu vikunnar.


Síðast breytt: 16. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?