Viðbygging við íþróttahúsið í Hveragerði.
04.11
Frétt
Framkvæmdafréttir
Nú er búið er að reisa allt stálvirki viðbyggingarinnar og langt komið með að setja yleiningar á útveggi en að því loknu verður hafist handa við að loka þakinu. Stefnt er að því að viðbyggingin verði að mestu leyti fokheld í lok nóvember nk. en þá verður þó eftir að einangra og steypa gólfplötu íþróttasalarins. Samningsverkið er á áætlun og gert er ráð fyrir verklokum í mars 2027. Í framhaldi af því verður hafist handa við að klæða húsið að utan, innrétta það og ganga frá lóð. Gerð útboðsgagna fyrir þá verkhluta er vel á veg komin.
Guðmundur F. Baldursson, byggingarstjóri


Síðast breytt: 4. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?