Viðbygging við íþróttahúsið í Hveragerði.
Eins of flestir bæjarbúar vita þá er nú í byggingu nýr íþróttasalur við núverandi íþróttahús við Skólamörk 2. Í viðbyggingunni, sem er samtals um 1.800m2 að flatarmáli, verður aðstaða til æfinga og keppnisíþrótta.
Nú er búið er að steypa upp flest alla veggi auk botnplötu í áhaldageymslu og í fimleikagryfju en eftir er að steypa innveggi og botnplötu í íþróttasal. Hluti af stálvirkinu, sem fer í yfirbyggingu hússins er komið inn á geymslusvæði bæjarins og er reiknað með því að byrjað verði að reisa það á allra næstu vikum. Gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði fokheld fyrir 15. desember nk.
Samningsverkið, sem nú er í gangi, er fyrsta útboðsverk af a.m.k. þremur í 1. áfanga viðbyggingar. Næst verður boðin út utanhússklæðning ásamt lóðarfrágangi og síðan frágangur innanhúss. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær þessi verk verða boðin út en gert hefur verið ráð fyrir því að viðbyggingin verði tekin í notkun veturinn 2027-2028.
2. áfangi viðbyggingar, sem verður um 500 m2 að flatarmáliverður byggðurupp við norðurhlið 1. áfanga. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær áfanginn verður byggður en hann mun rýma ýmiss stoðrými fyrir keppnishús s.s. búningsklefa, starfsmannaaðstöðu, forrými og veitingaaðstöðu.
Hveragerði 10. júlí 2026
Guðmundur F. Baldursson, byggingarstjóri

