Fara í efni

Viðbrögð við fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 3. september að halda áfram heildstæðu endurmati á fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar og þeim aðgerðum sem nauðsynlegar eru til að tryggja traustan rekstur sveitarfélagsins á komandi misserum. Á fundinum voru meðal annars lögð fram minnisblöð í tengslum við lausafjárstöðu, tekjuforsendur og fjárfestingar sveitarfélagsins auk tillagna um næstu skref. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þær megináherslur og þau verkefni sem fram komu í minnisblöðunum og fól stjórnsýslu sveitarfélagsins ásamt bæjarstjóra að halda þeirri vinnu áfram.

Yfirferð á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins hefur sýnt að verulegur hluti þeirra tekna af uppbyggingarverkefnum sem fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins gerðu ráð fyrir hafa ekki skilað sér á þeim tíma eða með þeim hætti sem áður var gert ráð fyrir. Þetta hefur orsakað veika lausafjárstöðu og aukna þörf fyrir fjármagn til að mæta skuldbindingum og rekstri sveitarfélagsins.

Í ljósi þess var samþykkt að auka heimild til lántöku á árinu 2026 um allt að 600 milljónir króna og sótti Hveragerðisbær í kjölfarið um 600 milljónir króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Þrátt fyrir að lánið hafi verið samþykkt hefur Lánasjóður sveitarfélaga sett skilyrði fyrir útgreiðslu þess. Skilyrðin eru uppfærð raunhæf þriggja ára rekstrar- og fjárfestingaráætlun. Slík skilyrði hafa ekki áður verið sett við lántökur sveitarfélagsins og marka því nýja stöðu sem mikilvægt er að bregðast við með markvissum hætti.

Skilyrðin endurspegla jafnframt þá fjárhagslegu stöðu sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir og undirstrika mikilvægi þess að farið verði ítarlega yfir tekjuforsendur, rekstur og fjárfestingar og metið hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar til að tryggja traustan rekstur og fjárhagslegan stöðugleika til framtíðar.

Næstu skref

  • Yfirferð á fyrirhuguðum útgjöldum og skuldbindingum

Til að mæta núverandi stöðu hefur sveitarfélagið þegar hafið yfirferð á fyrirhuguðum útgjöldum og skuldbindingum á næstunni. Um er að ræða aðgerðir til skemmri tíma sem ætlað er að tryggja að útgjöld og skuldbindingar þróist í samræmi við lausafjárstöðu á meðan unnið er að frekari greiningu og endurmati á fjárhag sveitarfélagins. Lögð verður áhersla á að þessar skammtímaaðgerðir hafi sem minnst áhrif á lögbundin verkefni og grunnþjónustu sveitarfélagsins.

  • Sjóðstreymisáætlun

Sveitarfélagið hefur tekið í notkun sjóðstreymisáætlun sem nær út árið 2026. Henni er ætlað að veita skýrari yfirsýn yfir þróun tekna, útgjalda og lausafjárstöðu og styrkja grundvöll ákvarðana um rekstur, framkvæmdir og fjármögnun næstu mánuði. Markmiðið er að sjóðstreymisáætlunin verði tól sem verður notast við áfram.

  • Yfirferð á uppbyggingarverkefnum

Farið hefur verið í heildstæða yfirferð á þeim uppbyggingarverkefnum sem fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins gerðu ráð fyrir að myndu skila tekjum á árinu 2026, meðal annars í formi lóðaúthlutana, byggingarréttargjalda og annarra tekna sem tengjast uppbyggingu. Sú yfirferð sýnir að verulegur hluti tekna sem gert var ráð fyrir mun ekki skila sér á þeim tíma eða með þeim hætti sem gert var ráð fyrir. Ástæðurnar má helst rekja til þess að um er að ræða tekjur sem að stórum hluta eru tengdar verkefnum sem enn eru á undirbúnings-, skipulags- eða samningsstigi. Því er nauðsynlegt að endurmeta tekjuforsendur sveitarfélagsins, bæði með tilliti til þess hvaða tekjur kunna að skila sér síðar en gert var ráð fyrir og hvar mögulegt er að hraða framgangi verkefna sem geta styrkt tekjustofna sveitarfélagsins.

  • Heildstætt endurmat á rekstrar- og fjárfestingaráætlunar

Verið er að framkvæma heildstætt endurmat á rekstrar- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins til næstu þriggja ára. Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja að umfang framkvæmda, sjóðstreymi og fjármögnun þróist í takt við getu sveitarfélagsins. Sú áætlun verður grundvöllur áframhaldandi ákvarðanatöku, komandi fjárhagsáætlunar 2027 og þeirra skilyrða sem þarf að uppfylla til að fyrirhuguð lánveiting frá Lánasjóði sveitarfélaga komi til framkvæmda.

  • Tilkynning til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga

Bæjarstjórn hefur samþykkt að funda með Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Í sveitarstjórnarlögum er kveðið á um að sveitarstjórn skuli gera nefndinni viðvart telji hún að fjárhagur sveitarfélags eða fjárhagsleg staða þess gefi tilefni til þess. Með þessu vill sveitarfélagið tryggja gott upplýsingaflæði og virkt samtal við eftirlitsaðila á meðan unnið er að endurmati á fjárhagsstöðu þess.

  • Íbúafundur

Hveragerðisbær mun standa fyrir opnum íbúafundi. Þar munu fulltrúar bæjarins kynna stöðu mála, þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráðist í og þær ákvarðanir sem kunna að liggja fyrir ásamt því að svara spurningum. Mikilvægt er að skapa vettvang þar sem íbúar hafa greiðan aðgang að réttum upplýsingum og fái tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Hveragerðisbær stendur frammi fyrir krefjandi verkefnum. Núverandi staða kallar á ábyrgar ákvarðanir, skýra forgangsröðun og vandaða áætlanagerð. Ég er þó sannfærður um að með góðu samstarfi kjörinna fulltrúa, stjórnenda og starfsfólks sveitarfélagsins takist okkur að bregðast við þessari stöðu, styrkja fjárhag bæjarins og skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu og þjónustu við íbúa.

Sjá fundargerð bæjarstjórnar frá 3. september hér: Bæjarstjórn - 607. fundur - 03.09.2026 | Hveragerði


Síðast breytt: 8. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?