Fara í efni

Val á fegurstu görðum Hveragerðis fer fram 20. júlí 2020.

Að venju verða fegurstu garðar Hvergerðinga verðlaunaðir á Blómstrandi dögum nú í ágúst.
Umhverfisnefnd sér nú sem áður um að velja fallegustu garðana.

Umhverfisnefnd mun fara í sína árlegu skoðunarferð þann 20. júlí og eru íbúar hvattir til að vera búnir að koma görðum sínum í sem glæsilegasta horf fyrir þann tíma.

Umhverfisnefnd þætti einnig mjög vænt um að fá ábendingar um fallega garða sem ættu skilið að verða verðlaunaðir.
Senda má ábendingar á mottaka@hveragerdi.iseða hringja í síma 483-4000


Síðast breytt: 25. ágúst 2020
Getum við bætt efni síðunnar?