Fara í efni

Val á fegurstu görðum Hveragerðis 2022

Að venju verða fegurstu garðar Hvergerðinga verðlaunaðir á Blómstrandi dögum nú í ágúst.

Umhverfisnefnd sér nú sem endranær um að velja garðana.

Ætlunin er að skoðunarferð verði þann 20. júlí og eru íbúar hvattir til að vera búnir að koma görðum sínum í sem glæsilegast horf fyrir þann tíma.

Umhverfisnefnd þætti einnig mjög vænt um að fá ábendingar um fallega garða sem ættu skilið að verða verðlaunaðir.

Hægt er að senda ábendingar hér, senda tölvupóst á mottaka@hveragerdi.is eða hringja í síma 483-4000

Umhverfisnefnd


Síðast breytt: 8. júlí 2022
Getum við bætt efni síðunnar?